22.05.2005 12:33

Ósigrar

Úrslitaleikurinn í FA Cup var í gær. Þar kepptu Manchester United og Arsenal til úrslita. Manchester átti allan leikinn sem og framlenginguna. Man Utd yfirspiluðu Arsenal. Þeir áttu 24 skot á markið , á meðan Arsenal átti 5 skot. Man.Utd var með öll völd á vellinum og léku varnarmenn Arsenal oft grátt.

Man.Utd fékk alltof mörg færi til að skora og fór þar fremstir Wayne Rooney og Ruud van Nistelrooy.

Í seinni hálfleik sóttu Man.Utd stíft. Rooney átti skot í stöng og Nistelrooy átti frábæran skalla sem varinn var á marklínu. Það er nokkuð víst að Arsenal hefur ekki æft fótbolta frá því að deildinni lauk. Þeir hafa bara æft nauðvörn og að bjarga á línu.

Endaði leikurinn með 0-0 jafntefli og var gripið til framlengingar

Man.Utd réðu undirtökunum í framlengingunni en náðu ekki að skora. Spanjóla skrattinn Reyes var svo rekinn útaf í lokin fyrir að stöðva skyndisókn hjá Man.Utd. En framlengingin var markalaus og þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni.

Man Utd. skoruðu úr 4 spyrnum , Paul Scholes klikkaði og var það eldri borgarinn Jens Lehmann sem var fyrir , en Arsenal skoruðu úr sínum 5 og unnu þar með titilinn af United.

Þetta eru ógeðslegustu úrslit sem ég hef séð í fótbolta frá því að Danir unnu Hollendinga árið 1992 í vítaspyrnukeppni á EM. Það klikkar aldrei , þau lið sem ég held upp á tapa alltaf í vítaspyrnukeppni.

Mér finnst að Arsenal eigi að vera sannir karlmenn og afneita titlinum. Þeir eiga hann engan veginn skilið. Þetta var svo ósanngjarnt að ég verð klökkur á að skrifa þetta.

- - -

Ég fékk mér nýjan síma í gær , Nokia 1100. Þetta er svona "öryrkja og atvinnuleysissími" Kostar ekki rassgat. Hann er einfaldur . Það er enginn auka búnaður í honum s.s. útvarp, myndavél eða íslenska. Ef maður týnir honum , þá er það enginn missir. Jú , kannski símakortið sjálft. Það er allt og sumt.

- - -

Horfði á Eurovision í gær. Þvílíkur hryllingur. Það ætti bara að leggja þessa keppni niður. Þetta er orðinn einn stór skrípaleikur. Lagið sjálft og söngurinn skiptir engu máli. Til að fá stig , þarftu að eiga góða nágranna. Helst í austri.Ég ætla að vona Ísland hætti þessu. Við eigum engan séns í þessaari keppni.

Annað sem ég er að spá í , ef að við myndum draga okkur úr keppninni. Ætli 16 sætið yrði fellt út til heiðurs Íslandi . Hver veit ..??

ggs

21.05.2005 12:39

" falskasta brosið og stærstu fæturnir "

Eins og allir vita , þá komst Ísland ekki upp úr utandeildinni í Eurovision í gær. Þvílík snilld sem það var. Flest allir voru búnir að spá okkur sigri , allavega topp 5. En nei , viti menn , við erum greinilega verri í söng heldur en í körfubolta.

Ég held að það sé kominn tími til að við hættum þessari vitleysu og notum frekar aurinn sem það kostar að senda lið í þessa keppni og eyðum honum í betri sjónvarps dagskrá á RÚV. Ekki veitir af meira fjármagni til RÚV. Allir þeirra peningar fara í skandinavískar heimildamyndir og táknmáls fréttir.

- - -

Ligg uppí sófa núna og er að glápa á Ungfrú Ísland. Var að vona að það væri jafn mikil spenna í keppninni eins og í Miss Congeniality með Söndru Bullock , en nei , svo var ekki.
Unnur Birna tók öll verðlaun í keppninni , nema falskasta brosið og stærstu fæturnir. Hún er vel að titlinum komin , enda bráðhugguleg. Held samt að hún sé komin með brjósklos eftir alla borðana sem hún fékk.

- - -

Ég ætla að vera edrú um helgina. Það er ekkert um að vera , og því er upplagt að leyfa líkamanum að hreinsa sig. Er líka farinn að fá bjórvömb eftir allt þetta bjórþamb. En hún mun ekki stoppa lengi. Ætla að fara út að ganga á morgun . Verður það fyrsti dagurinn í mínu lífi sem ég fer út með það markmið til að ganga til að huga að heilsunni. Það hef ég aldrei gert áður. Óla ætlar að labba með mér . Ef ég ætlaði einn , þá myndi ég kannski labba niður á suðurgötu og til baka. Það er nauðsynlegt að hafa einhvern til að reka á eftir sér.

- - -

Ég er enn að leita af leiðum til að stytta mér stundir í útskriftinni hjá sms. Hún varð allveg klikk þegar að Gauti frændi ætlaði að lána mér I-podinn sinn. Ég hef 6 daga til að redda þessu. Vona að það reddist. Annars er ég í vondum málum.

- - -

Það verður árgangsmót hjá mér núna 18 júní. Á sama tíma og ég verð að gróðursetja plöntur inn á Gautlandi. Veit ekki allveg hvort ég á að velja. Hitta "83 árganginn eða Gautlandsættina. Stend á gati , en hallast frekar að síðari valmöguleikanum. Nenni ekki á svona re-union . Held að það sé skemmtilegra að hitta ættmenni sem ég sé aldrei , frekar en hitt liðið sem maður rekst á svona annað slagið.

- - -

Jæja .. það er best að drulla sér í bælið , er að fara að vinna í fyrramálið . Ætla að reyna að halda áfram með drauminn sem mig hefur dreymt síðustu nætur. Vonandi endar hann í nótt og þá mun ég setja hann hér inn , góður draumur maður..

ggs

19.05.2005 12:06

Nöldur

Ég hélt alltaf að mestu skíthælar íslands kæmu frá Skagafirði , allavega í seinni tíð. En í dag var mér það ljóst að mér skjátlast, þeir koma frá Selfossi og eru ættaðir frá Egilsstöðum.

Málið er það að ég seldi bíl sem ég átti og ætlaði aðilinn sem keypti hann af mér að færa lánið strax yfir á sig þegar að hann myndi færa bílinn á sitt nafn en hann hefur ekki gert það enn og það var í febrúar. Núna er ég kominn í bölvað vesen hjá Vís.

Bíllinn er á hans nafni en lánið á mínu. Síðan þegar ég hef hringt og sagt honum að drífa í þessu , þá hefur hann alltaf, sem og kerlingar beyglan hans skáldað upp þvílíka sögu að Dúddi frændi væri stoltur af svona góðri lygi.

- - -

Önnur vandræði sem ég er kominn í , er útskriftin steinunnar systir. Skildist það , að þetta væri 3 til 4 tíma prógram !? Held að þetta séu um 160 mr-ingar sem er 158 of mikið fyrir minn smekk. Ég get aldrei setið í 3 tíma og hlustað á ræður um dúxa og nörda. Helvítis , hefði hún farið á Laugar eða FNV þá hefði þetta tekið svona 75 mín enn nei , hún fór  í snobbið.

Steinunn má taka með sér 4 í útskriftina. Gaui er í forgang , svo pabbi og þar næst Bjössi . Þá eru komnir 3 aðilar. Mamma treystir sér ekki í 3 tíma setu í Háskólabíó sem ég skil vel og þess vegna neyðist ég til að mæta sem 4 aðili. Ég er búinn að reyna að finna einhvern sem stendur henni nær en ég , en því miður , sá aðili er ekki til eða kemst ekki. Guðni verður á Sigló , amma veik , Elsa veik og það má ekki hafa ketti þarna , þannig að mjallhvít verður að vera heima.

Þannig , ég á ansi erfiðan dag fyrir höndum.

ggs .


p.s
Fann 1 góða mynd til að enda þessa færslu með




17.05.2005 11:30

Pylsuvagna til sölu !

Vagnin er á hjólum og er hann bara hengdur aftan í bíl og er hægt að ferðast með hann um allt land. Það er 1 rafmagns pylsupottur og 1 gaspottur/skápur í honum . Það er hægt að hafa rennandi vatn sem heilbrigðiseftirlitið setti sem skilyrði fyrir leyfinu og var það mjög hrifið af útfærslunni. Vagnin var allur tekinn í gegn síðasta sumar og er hann eins og nýr.

Vagninum fylgja 2 gosskápar frá Vífilfell.

Ég er búinn að semja við SS og Vífilfell um að merkja vagninn , eiganda að kostnaðarlausu. Frank & Jói munu sjá um þær og verður drifið í því á næstunni.

Vagnin var aðeins notaður 2 sinnum á síðasta ári og var útkoman ágæt. Vegna mikilla anna hef ég ekki tíma til að vera með hann í sumar og verð þess vegna  að selja hann.

Hægt er að sjá nokkrar myndir á slóðinni http://gauti.myphotoalbum.com/albums.php - Fleiri og betri myndir verða settar inn annaðkvöld. Þessar sem eru fyrir eru of bjartar.

Áhugasamir hafi samband í síma 868-9333 eða 467-1125 (frá 9 - 19)

ggs

10.05.2005 10:38

Útkall - Ásdís Ólöf er að sökkva !

Helvítis gimpinn í Chelsea unnu mína menn , Manchester United, áðan 1-3. Núna eru þeir 20 stigum á undan Man Utd . Hugsa sér 20 stiga munur , þetta er ekki eðlilegt. Ef að Man Utd ætlar sér eitthvað á næsta ári, þá verður að fara að taka til í leikmannahópnum.

Losa sig við leikmenn sem eru komnir á grafarbakkann eða eru undir þeirri getu að spila fyrir klúbb eins og Man Utd. Leikmenn eins og Bellion , Fletcher, Kleberson, Carrol, Neville undrin og Saha svo að einhverjir séu nefndir mættu allveg hverfa á brott mín vegna.

Til dæmis má Nistelrooy ekki meiðast , þá er ekki skorað mark á meðan. Ferdinand má ekki vera utan við sig og gleyma einu prófi , þá er enginn sem getur pússað skóna hans á meðan hann er í 7 mánaða pásu.

Í svona "stórklúbbi" sem vann þrefalt árið 1999 , verða að vera til menn sem geta sigrað lið eins og WBA.

Ef að við vinnum ekki bikar á næsta tímabili , þá fer ég í hjartaaðgerð og læt taka úr mér Manchester United hjartað og setja Torquay hjarta í staðinn. Ég veit þó að þeir ná ekki langt og tapa yfirleitt alltaf . Þá er maður ekki að gera sér vonir sem verða svo að engu og ef þeir vinna þá verður maður svo glaður að það er eins og að maður hafi unnið stóra pottinn í Vikingalottóinu.

- - -

Í fyrrakvöld lagðist ég til hvílu um kl 01:45. Þegar að ég var búinn að liggja og horfa á loftið í korter fékk ég sms og hrökk ég við og fór að spá í hver væri vakandi á þessum tíma sólarhringsins. Þar sem skeiðvöllurinn er 2x2 metrar tók smá tíma að finna símann og loks þegar ég fann opnaði ég sms-ið og blasti þá við mér > 112 . Ég hentist á fætur og las upphátt "Utkall-F1 Rauður- Svædi 10-sjóslys-umbedid af tilkynningaskyldu sjómanna>5617111 - Sender 112

Ég kveikti ljós og stökk í föt , buxur , bolur , sokkar, 2 peysur og jakki og svo út. Upp í BMW-inn og brunað af stað niðrá á bryggju. Þegar að ég kom í Sveinsbúð var Bjössi Bó mættur og örfáum sekúndum seinna komu þeir feðgar Ómar Geira og Addi , svo komu Raggi Hansa og Ægir Bergs. Ómar hljóp um borð í Sigurvin og setti allt í gang á meðan við hinir náðum okkur í galla og dót og svo var hlaupið um borð í Sigurvin, landfestar losaðar og Sigurvin settur á fullt út fjörðinn.

Drifu allir sig í galla og svo var bara að bíða þar til að við komum á staðinn þar sem kallið kom frá. Bjössi fór niður og hellti upp á kaffi og fórum við hinir þá fram á og upp og fórum að skima í kringum okkur í þeirri von um að við sæjum eitthvað.

Þegar að klukkan var að verða 03:00 sáum við ljós blikka fyrir framan okkur og svo stuttu seinna sáum við neyðarblys . Voru þeir félagar þá komnir um borð í björgunarbátinn

Kl. 03:05 vorum við búnir að finna þá og þeir komnir um borð í Sigurvin. Sem betur fer fór þetta allt á besta veg. Ákveðið var að setja tóg um borð í trilluna en hún maraði þá í kafi. Í fyrstu tilraun slitnaði tógið en það tókst í annarri tilraun og var hún þá dreginn til hafnar á þriggja mílna hraða.

Við vorum komnir heim til Siglufjarðar um kl. 08:15 og var þá báturinn hífður upp á bryggju. Ekki hefur komið fram hvað olli því að trillan fylltist af sjó og sökk. Það var fínasta veður og skyggni var þokkalegt.

- - -

Ramminn er búinn að koma sér upp bloggsíðu, www.blog.central.is/ramminn . Ramminn fer á kostum þar eins og honum einum er lagið. Það eru fáir sem geta lýst hlutum jafnvel og hann.

- - -

En jæja.. það er best að fara upp á loft og leggja sig í hengirúminu með 1 Carlsberg. Er orðinn þyrstur af allri þessri líkamsrækt sem ég er búinn að stunda í kvöld. Er kominn í átak. Geng núna 10 ferðir upp stigann úr forstofunni og upp á gang og til baka á dag.

ggs - aka Respected Tokemaster

08.05.2005 05:24

Respected Tokemaster

Merkilegt , rakst áðan á stórmerkilega grein. Hún fjallaði um það , ef að maður missir hausinn , þá getur búkurinn gengið 32 skref. Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða hvað yfir þessari vitneskju. Það er allavega gott að vita þetta ef maður myndi lenda í þeirru lífsreynslu að missa hausinn. Ég myndi hlaupa til norðurs ef að þetta kæmi fyrir mig.
Svo ég vitni nú aðeins í greinina :

" The executioner cut his head off, but the body jumped up and ran by the other convicted people to the immense horror of the king and everyone who witnessed it. The beheaded body made 32 steps, having passed the last person in the line, tumbled down to the ground, and remained quiet. "

Annars hef ég lítið að segja , skrapp á ball í gær á hAllann með Sent . Þetta er ágætisgrúppa , bjóst ekki við neinu en kom skemmtilega á óvart. Það var frekar léleg mæting , 40- , en eins og ég sagði hörku stuð.

Þegar að heim var komið , lagðist ég upp í sófa og vafði mig inn í teppi og náði í mig yl eftir gönguna. Þegar að líkamshitinn var loksins kominn upp fyrir greindarvísitöluna á Gunnu Finna (36°c) , rölti ég upp á háaloft og lagðist í hengirúmið og ruggaði mér þar til að ég fann að maginn var farinn að hefja stríð innvortis, þá rölti ég niður og fór að sofa.

Núna á ég bara eftir að mála Kontorinn/Koníaksstofuna og gestaherbergið og þá er allt komið. Ætla að klára þetta í vikunni , er búinn að lána H26 um helgina , þannig að þá verður allt að vera tilbúið. Get ekki lánað kofann ótilbúinn.

Steinunn systir er búinn að finna sér flott áhugamál. Það er að stafla upp klinki og taka myndir af því . Afraksturinn má sjá á síðunni hjá henni . (http://fincher.org/Misc/Pennies/Sent.shtml )

            Þegar að ég hengdi upp hengirúmið í gær, sagði Ramminn við mig að ég yrði að byrja að reykja hass og hlusta á Bob Marley. Það fylgdi alltaf svona rúmum. Ég ætla nú ekki að byrja á hassinu , er nógu skemmdur fyrir en ætla að byrja að hlusta á Marley. Svo var ég að vafra um netið áðan og rakst á síðu, þar sem þú getur séð Cannabis nafnið þitt og er mitt "Respected Tokemaster" . Slóðin á síðuna er http://www.electricartists.com/cannabiscup/stoner.html .

En nóg að sinni ,

Respected Tokemaster

07.05.2005 03:39

Allt í drasli

Þetta er skrýtinn dagur . Ég er í fríi í dag og veit ekkert hvað ég á að gera. Vaknaði í hádeginu og er að spá í að fara að þrífa H26 hátt og lágt. Var að hella á könnuna og er að koma mér í gang. Hef gert ansi lítið hérna heima fyrir upp á síðkastið vegna ýmissa anna.

Skrapp á Lions fund í gærkveldi og var bara hörkustuð . Það var félagsmálafundur með hefðbundnum eldhúsumræðum þar sem málefni klúbbsins voru rædd.

Eftir fundinn tók ég rúnt með Rammann og um miðnætti hélt ég heim á leið. Ég var eitthvað dasaður í gær , þannig að ég sötraði Fanta á fundinum og var allsgáður . Enda var dásamlegt að vakna í dag hress og kátur og laus við alla þá ókosti sem fylgja bjór sötri.

Fyrsti frídagurinn í þónokkurn tíma og tímdi ég ekki að eyða honum upp í rúmi með hausverk og dregið fyrir gluggan til að forðast birtuna.

Horfði á Ali í gærkveldi. Góð mynd um magnaða persónu. Hann var ekki síðri ljóðahöfundur heldur en boxari. Hann talaði í vísum og ljóðum um andstæðinga sína og það sem hann sagði um George Foreman fyrir bardagan "Rumble in the Jungle" árið 1974 er eitt besta qoute sem ég hef bæði lesið og heyrt en það er svona  :

A Bad Morning Shave

You think the world was shocked when Nixon resigned?
Wait till I whup George Foreman's behind.

Float like a butterfly, sting like a bee
His hands can't hit what his eyes can't see
Now you see me, now you don't
George thinks he will, but I know he won't.

I done wrassled with an alligator
I done tussled with a whale
Only last week I murdered a rock
Injured a stone, hospitalized a brick
I'm so mean I make medicine sick

Muhammad Ali neitaði að fara til Víetnam. Hann neitaði að taka þátt í þessu tilgangslausa stríði. Hann lét frekar svipta sig meistaratitlinum og leyfinu til að berjast , heldur enn að drepa saklausa víetkonga.

Clean out my cell
And take my tail to jail
'Cause better to be in jail fed
Than to be in Vietnam, dead

En annars hef ég ósköp lítið að segja. Er að sanka að mér húsgögnum héðan og þaðan. Það er ennþá pláss fyrir ýmislegt , ef að þú þarft að losna við eitthvað . Nonni Salla og Helga gáfu mér flottann leðursófa núna um daginn og er þetta allt að koma hjá mér. Er byrjaður að undirbúa koníaksstofuna . Er búinn að taka til á loftinu og fer að byrja að setja húsgögn upp.

Talaði við Rúnar hjá Vífilfell og ætlar hann að redda mér Carlsberg dóti til að hafa í stofunni, ásamt fleiru dóti . Þannig að núna bíð ég spenntur eftir sendingunni minni.

Steinunn systir útskrifast úr MR 27. maí og neyðist ég þá til að fara suður til að vera viðstaddur. Hún ákvað að nota stúdentshúfuna mína , ætlar að gera hana að ættargrip :) Þannig að komandi afkomendur okkar munu nota hana næstu árin .

En jæja.. ég er farinn að þrífa.. veitir ekki af, allt í drasli .

ggs

04.05.2005 12:12

IKEA

Í september síðastliðnum skrapp ég til Reykjarvíkur sem er ekki frá sögu færandi nema að einu leyti . Ég skrapp í IKEA , ásamt Tomma Píp og Ragnheiði frænku.

Þegar að við komum inn í búðina , tökum við kerrur og löbbum á stað. Þetta var í fyrsta sinn sem ég hafði komið í IKEA frá því að ég man eftir , og líklega það síðasta.

Þar sem ég var floginn úr hreiðrinu og farinn að búa þá ákvað ég versla mér eitthvað í kotið . Mig vantaði svo sem ekkert , en fyrst ég var kominn , þá ákvað ég versla eitthvað smotterý.

Við erum rétt lögð af stað, (að labba í gegnum IKEA, er eins og labba inn á Ketillás) þegar ég kem auga á svona WC sett. Þetta var tannbursta glas, wc rúlluhaldari og eitthvað fleira drasl . Allt úr burstuðu stáli. Mér leist agalega vel á þetta og set þetta allt í körfuna mína.

Svo löbbum við áfram og þá sé ég þetta flotta skrifstofu sett. Bakki undir pappír, pennastatíf, og eitthvað fleira drasl . Ég set þetta allt í körfuna og við höldum maraþoninu áfram.

Ég og Tommi urðum að taka pásur og leggjast í alla sófa sem við sáum til að hvíla fæturnar.

Ég keypti líka fullt af allskonar auka drasli, en það er aukaatriði.

Svo loksins þegar að við komum á kassann fer Ragnheiður á undan. Það var bráðhugguleg stúlka að afgreiða og ég beið spenntur þar til að það kæmi að mér.

Stúlkan klárar Ragnheiði og býðst svo til að afgreiða mig. Ég set draslið upp á borð og hún byrjar að skanna dótið. Ég er eitthvað annars hugar og er að horfa í kringum þegar að stúlkan segir :

IKEA Girl : Þú mátt ekki kaupa þetta (heldur á WC rúllustatífinu)
ggs : Má ég ekki kaupa þetta, er þetta ekki til sölu ?
IKEA Girl : jújú.. en þetta er sýningarvara.
ggs : Ha?
IKEA : Þú mátt ekki taka vörur sem eru uppí hillu, þú átt að taka það sem er ósamsett.
ggs : Djöfulsins vitleysa, jæja.. hirtu þetta þá ..

Svo heldur stúlku greyjið áfram að skanna en stuttu seinna segir hún :

IKEA : Fyrirgefðu , en þú mátt ekki kaupa þetta heldur. Þetta er líka sýningarvara , eins bakkinn og allt þetta (bendir á það sem var eftir á borðinu) En þú mátt hlaupa til baka og ná í annað.

ggs : er ekki í lagi með þig , ég rata ekki til baka . Ég er búinn að labba hérna í 2 tíma , gleymdu þér , ég kaupi þetta bara annar staðar. (Orðinn hundfúll)

Því næst lít ég upp og sé að Tommi skammar sín svo mikið , að hann er farinn út í horn og er að svara einhverju IKEA spr. , "Hvernig getum við bætt okkur gagnvart þér" , allt fólkið í kring flissandi og reyndi að halda pókerfeis svo að það myndi ekki springa úr hlátri.

Svo segir hún töluna , 3xxx og ég rétti henni kortið , setti í poka og strunsaði út. Snéri svo við , labbaði að spr. kassanum og náði mér í blað og skrifaði "Setjið upp merki þar sem fólki er tilkynnt að það megi ekki kaupa sýningarvörur ! "

Ég hef aldrei skammast mín jafn mikið og þarna . Hefði ég einhvern tímann viljað deyja standandi þá var það þarna . Stelpugreyjið allveg í klessu út af þessu, fólk hlægjandi og Tommi þóttist ekki þekkja mig .

Þetta var bara ein saga af mörgum sem lýsa mér og minni heppni. Ég ætti kannski að segja seinheppni.

ggs

30.04.2005 08:28

Piparsveinalífið

Venjulegur dagur hjá einmana piparsvein á Siglufirði er svona:

08:30 - Maður vaknar við vekjaraklukkuna og veltir sér yfir í hinn helminginn á rúminu sem er alltaf tómur , nema í draumum manns.

08:45 - Snooze-ið skellur á og maður þýtur á fætur.

08:46 - Venjuleg morgunverk sett í gang s.s. pissar og tannburstar sig , horfir svo í spegil og undrast yfir því að þú skulir vera á lausu.

08:52 - Fötin valinn fyrir vinnudaginn. Muna að velja eitthvað smart.

08:56 - Núna hefst leitin af bíllyklunum . Þeir finnast í jakkanum sem maður var í í gær.

08:59 - Hlaupið út í bíl , diskur settur í fóninn og brunað af stað.

09:03 - Loksins mættur í vinnuna. Aðeins 3 mín of seinn. Það kemur fyrir besta fólk.

09:04 - 10:00  - Setið og slappað af. Mikið kaffi drukkið , til að starta líkamanum og deginum.

10:00 - 19:30 - Dagurinn látinn líða í vinnunni. Tilhlökkun fyrir kvöldið hefst.

19:30 - 20:00 - Smá rúntur tekinn um bæinn . Keyrt er um allar götur bæjarins þar sem fólk er finna. Þegar að rúnturinn er hálfnaður sjást nokkrar stelpur úr 10 bekk. Þá er hægt á sér og þær skoðaðar . Eftir smá skoðun kemur samviskan upp og segir þér að þær eru of ungar . Til að gera sig ekki að meira fífli , þá er brunað heim.

20:00 - Loksins er kominn matartími. Þar sem að maður býr einn , þá nennir maður ekki að elda öll kvöld . Þannig að maður eldar 2 í viku , einn rétt sem dugar í 3 daga og hinn í 4 daga. Í kvöld er það 2 dagur af 4 , þar sem Tortillas er á matseðlinum. Eftir matinn er pappadisknum hent og kannan skoluð.

20:25 - Kveikt á sjónvarpinu og tölvunni. Flett á mili stöðva þar til að eitthvað áhugavert finnst. Því næst er tölvupósturinn athugaður. Eins og venjulega , þá er eini pósturinn sem maður fær , frá Verslunardeildum Verkalýðsfélaganna. Honum er eytt jafnóðum . Leiðinleg lesning.

20:45 - Reynt er að semja sniðugan pistil til að setja á bloggsíðuna. Ef að teljarinn fer yfir 50 þá líður manni vel , en ef að einhver kommentar þá er maður í sæluvímu. Það er tekið eftir þér.

21:00 - Gengið er inn í öll herbergi í húsinu og kveikt á öllum ljósum . Því næst er hellt upp á fulla könnu af kaffi , því kannski sér einhver ljós og ákveður að kíkka í heimsókn. Núna tekur biðin við. Hún er löng . Mjög löng .

21:30 - Þú ert ennþá að bíða. Liggur upp í sófa og skoðar gömul sms í símanum þínum. Síminn hringir. Þetta er kvennmannsrödd. Þetta er mamma að spyrja hvernig dagurinn gekk. Allt í einu heyrist í bíl og þú stekkur á fætur. Segist hringja seinna. Heldur að gestirnir séu komnir . En nei, þeir voru að fara í næsta hús. Bömmer.

22:00 - Öll ljós slökkt , nema í eldhúsinu. Því að þú ert að ná þér í bjór í ísskápinn . Það á drekkja sorgum sínum í Carlsberg eða Löwenbrau.

22:45 - Þú ert búinn með 3 öl. Þér líður betur. Einmannaleikin er farinn . En hann kemur aftur. Hann kemur daginn eftir og líka þann næsta.

23:00 - Þú lætur renna í bað. Vafrar um netið á meðan og rekst á nokkrar bloggsíður þar sem fólk er að segja frá vinum sínum eða kærustunni. Þú átt hvorugt. Það segir allavega gestabókin . Þú ert sá eini sem ert búinn að skrifa. Það er kannski ekkert að marka það . Þú keyptir hana hvort sem er fyrir 3 vikum .

23:30 - Baðið er tilbúið . Þú leggst ofan í með 4 bjórinn og trallar með útvarpinu ,

"Djöfull er ég flottur (megaháttar báðum megin)
Djöfull er ég flottur (einnar nætur ofurstandur)

Adam eða Eva
ein er nóg en fleiri eru meiriháttar
Alan eða Alda
ég reyn´að skapa pínulítinn augnakontakt
en ég nenni ekk´að stand´upp
mér líður best að sitja hér á rassgatinu

Djöfull ertu flottur "

00:30 - Þú ert soðinn í gegn . Drattast upp úr og þurrkar þér og makar á þig kremi og tannburstar þig. Loksins er maður tilbúinn til að leggjast til hvílu. Þú ferð inn í stofu til að slökkva ljósin. Horfir á sófann og hugsar "kannski ég horfi aðeins á tíví-ið , sofna svo bara í sófanum . Það bíður hvort sem er enginn inni í svefnherbergi eftir mér"

00:32 - Þú nærð í kodda og sæng , setur á dr 1 (Danska Rúv)

00:50 - Augnlokin fara að þyngjast og þú sofnar yfir "Haven i hune"

Á morgun tekur við annar spennandi dagur , þar sem spenna og drama heldur áfram.

29.04.2005 11:24

Hórskapur

Ég varð vitni að asni sérstökum atburði í gær. Ég varð vitni að því þegar að manneskja kom inn í Versló og var að stela , ásamt því að versla. Einhverja hluta vegna var ég ekki maður til að góma hana. Ég hefði getað staðið hana að verki , en hafði ekki kjark til að gera það. Til að toppa þetta allt , þá var vitni að þessu . Vitnið sagði mér þetta í dag , en þorði ekki heldur að láta mig vita af þessu í gær. Þorði ekki að skemma mannorð þessarar persónu.

Núna verð ég ævinlega á varðbergi þegar að þessi manneskja kemur inn í Versló aftur. Ég sagði Guðna og Helgu frá þessu og ætlum við að láta setja upp spegla og myndavélar í búðinni til að verjast svona atburðum .

Samt er ótrúlegt hvað fólk leggst langt í því að stela. Manneskja sem er kominn vel yfir 40 árin er að stela kexpakka og einhverju drasli. Ef að fólk er blankt , þá er ég allveg til í lána því fyrir kexpakka og súpubréfi.

Ég skil kannski að krakkar séu að þessu , að stela kexpakka , því að það er bara til að vera kúl fyrir vinina, hitt er ekkert svoleiðis. Það er bara stelsýki. Hreinn og beinn þjófnaður.

En nóg um það..

Ég horfði á The Bachelor í gær. Þvílík hörmung sem að þessir þættir eru. Þeir eru eins og bílslys. Maður vill ekki horfa , en horfir samt.

Hórkarlinn heitir Jesse og valdi hann 15 stelpur til að halda áfram af 25. Hann klúðraði auðvitað rósarafhendingunni. Sagði vitlaust nafn þegar að hann útdeildi síðustu rósinni. Sagði Katie , í stað Karen og þá voru góð ráð dýr. Hann bað Katie um skila rósinni og lét Karen hafa hana, en bauð Katie í staðinn að halda áfram.

Þarna sannaðist að þetta eru bara portakonur. Hefði hún verið með eitthvað í kollinum , þá hefði hún sagt honum að troða þessari rós upp í rassgatið á sér. En nei , hún var að verða ástfanginn , eftir 3-4 tíma kynni og sagði auðvitað já.

Hinar 10 sem voru reknar heim , hafa örugglega farið beint út á horn til að selja þjónustu sína eins og Lions menn með Jóladagatöl.

Var að koma heim af Lions , það var fámennt en góðmennt. Tók svo smá rúnt um bæinn . Að vanda var ekki kvikindi á ferli. Þannig að ég brunaði heim og er lagstur upp í sófa og er að horfa á JFK á dr 1 , danska ríkissjónvarpinu.

Það er kominn mynd af nýja Superman. Núna þarf Árni ekki lengur að horfa á gamla Lois & Clark þætti til að uppfylla þarfir sínar.

En jæja.. best að klára JFK og svo er maður farinn í bólið . .

ggs

28.04.2005 07:20

Nútímavæðing

Loksins er ég kominn inn í nútimann. Er kominn með ADSL heim á Háveg , þannig að nú þarf ég ekki að keyra niðrí Versló á kvöldin til að setja inn bloggfærslur ef að mér dettur eitthvað fyndið í hug.

Einnig er ég kominn með 11 sjónvarpsstöðvar í gegnum ADSL-ið þannig að loks getur maður farið að kalla sig nútíma mann , ekki neandertals-mann.

Steinunn systir er ólétt. Hún gengur með þríbura. Einn í hverjum lit. Áætlaður útgöngutími er 25.ágúst. Var allveg alsæll með eignast þrjá litla frændur á afmælisdaginn minn en þegar að ég var almennilega vaknaður , þá uppgvötaði ég að þetta var draumur/martröð.

Annars hef ég lítið að segja , setti auglýsingu í Tunnuna í gær sem hljóðaði svona : "Mig vantar 2 eða 3 sæta sófa , lítið sófaborð og trönur. Helst gefins , annars er greitt í auka þakklæti eða seinna þegar að ég er orðinn ríkur.

Guðmundur Gauti Sveinsson - Sími 868-9333 + 467-1125"

Ég er búinn að fá nokkur viðbrögð við auglýsingunni. Þannig að næst er ég að spá í að auglýsa eftir konu.

 

24.04.2005 05:38

Mykjuskánir og umboðstörf

Umm.. hvað á ég að segja í dag. látum okkur sjá..

Ég skrapp út í gær ásamt Hauki Leós, byrjuðum heima hjá honum að sötra bjór , ásamt Boggu, Ástrósu , Sigrúnu og Geira. Við sátum þar til að verða 02:00 og þá skelltum við okkur á stórsveitina Stúlla og Sævar, en þeir voru að spila á Torginu.

Það var nú ekki góð mæting , kannski svona 30+ , en þó var rosa stemmning . Það er allveg ótrúlegt hvað þeir félagar geta skapað mikla stemningu með 1 míkrófón og hljómborð.

Þetta var bara ágætis kvöld. Ég eignaðist nýjan vin , Belló. Hann er líklegast samkynhneigður, því að hann var alltaf að horfa á mig , sleikja og svo vildi hann bara leika sér.

- - -

Í þessum skrifuðu orðum , sit ég í Verlsó og er að láta mér leiðast. Það er ekkert að gera .

Fyrr í dag, þá vorum við bræður að hanna Versló-ís . Við bjuggum til 2 tegundur, Vanilluís og svo Koníaksís. Þið getið giskað á hvora hugmynda ég átti. Núna er bara að bíða og sjá , hvernig útkoman verður . Ef að vel hefur heppnast þá , fer framleiðslan í sölu núna í vikunni .

Ég er búinn að setja matseðilinn saman fyrir vikuna og er hann svona :

-         Mánudagur - Þýskir Dagar , Pylsur , Kartöflusalat og Pilsner.

-         Þriðjudagur - Fish and Chips.

-         Miðvikudagur - Lasagne

-         Fimmtudagur  - Versló Bollur

-         Föstudagur - Kjúklingar

- - -

Núna ætla ég að nöldra aðeins, það er allveg nauðsynlegt. Það lyftir upp andlegu hliðinni.

Ég er kominn með upp í kok af nýju Idol-stjörnunni, Hildi Völu. Lagið "hennar" Líf , er 5 hvert lag sem er spilað í útvarpi. Sama er að segja um Evrovison lagið okkar með Selmu. Það ætti að setja reglur sem banna þessum mykjuskánum með aflitaða hárið sem stjórna útvarpsþáttunum á bylgjunni og FM957 að spila hvert lag oftar en 4 sinnum á dag.

- - -

Nýtt Nýtt..

Núna er ég orðinn umboðsmaður rússnesku brúðarskrifstofunar, Volgagirl. Þar er að finna 2400 + stelpur, konur, mömmur og ömmur fyrir einhleypa karlmenn. Ef að einhver hefur áhuga þá getur hann haft samband við mig í gegnum mail á volgagirl@best.is . Einnig er hægt að skoða úrvalið á  http://www.volgagirl.com

En jæja.. það er best að slútta þessu ..

ggs

23.04.2005 07:12

Með skýlu í vasanum

Í gærkveldi eftir langan og strangan vinnudag ákvað ég , ásamt Halldóri Hermanns og Gunna Ramma , að væta kverkarnar og skreppa út á lífið .

Við byrjuðum heima á Hávegi og sötruðum nokkra bjóra og spjölluðum um lífið og tilveruna. Haukur Leós ákvað að kíkka á okkur , og kom hann með Michael Jacksson Ultimate Collections og var DVD disknum skellt í spilarann og teknir nokkrir dansar í stíl við Kónginn.

Auðvitað var ég áberandi bestur af okkur en þó sé ég fram á það að ég verða að seinka komu minni með Jacksson dansana þar til að ég verð 35 , í stað 25 eins og ég var búinn að segja.

Þegar að klukkan var að verða 01:30 , skelltum við okkur á hAllann til að skoða allar sundgellurnar sem eru í bænum en urðum þó fyrir miklum vonbrigðum. Það var bara enginn sundgella þarna.
Ramminn var svo viss um að fá eitthvað "heitt og gott" í kvöld hjá þessum sundskvísum, að hann var með sundskýlu í vasanum , en allt kom fyrir ekki.

Reyndar var þetta kvöld allgjört flopp. Bjössi skífuþeytir var kannski aðeins of glasaður til að sinna starfi sínu, spilaði lög með Fílapenslunum og Stuðmönnum, þannig að ég gafst upp kl 02:30 og rölti heim á leið .

Þegar að heim var komið , skellti ég MJ í spilarann og dillaði mér í sófanum við Billie Jean og Thriller þar til að ég sofnaði .
 

ggs kveður með MJ snúning.. 

21.04.2005 02:45

" 10 dropa takk "

Nú fyrir alls ekki svo löngu þurfti ég að leita til læknis vegna ótta við það að ég væri eitthvað allvarlega veikur. Ég fór á föstudegi og tjáði lækninum hvað hrjáði mig og bað hann mig um að koma aftur á mánudaginn kl . 8:00 , fastandi. Það gerði ég og var þá tekinn blóðprufa úr mér og ég settur í hjartalínurit og eitthvað fleira.

Svo daginn eftir hringi ég og fæ niðurstöðuna. Sem betur fer var ekkert að mér , en mér var bent á að hætta drekka kaffi , sjá svo til í smátíma og ef ég skánaði ekki , þá ætti ég að koma aftur í nánari tékk .

Þar sem ég er mikill kaffimaður þá gat ég ekki hugsað mér að hætta að drekka kaffi . Þannig að ég minnkaði það úr 35 bollum á dag , niður í svona 33,5. Svo leið smá tími og ekki skánaði ég . Ákvað ég þá að fara aftur til læknis eftir helgina til að tékka betur á mér.

Leið helgin og einhvern veginn í framhaldi , gleymdi ég alltaf að panta tíma. Svo núna er ég orðinn nokkuð heill og þarf ekki að leita aftur til læknis vegna þessa.

EN .. doktorinn sagði að kaffi væri svo óhollt að það væri gott sem mannskemmandi. Núna áðan rakst ég merkilega grein um kaffi sem ég ætla að leyfa ykkur að njóta. :

            Hækkaður blóðþrýsingur , krabbi, beinþynning, magasár, hjartsláttaróregla og minni frjósemi. Þetta eru einungis nokkrar af þeim ásökunum sem hafa dunið á kaffinu á undanförnum árum. En ásakanirnar eru ekki reistar á rökum samkvæmt lækninum Herbert Munice, sem er formaður Department of Family Medicine við háskólann í Maryland. Eftir að hafa skoðað 30 ára rannsóknir á kaffi og koffíni, kemst hann að þeirri niðurstöðu að engar þeirra geti beinlínis kennt hæfilegri kaffidrykkju um hinar óheppilegu afleiðingar. Hæfleg kaffidrykkja er hér álitin vera 3 bollar á degi hverjum, sem svarar til 300 mg af koffíni.

Þú færð 300 mg af koffíni ef þú drekkur u.þ.b.

# 3 bolla af kaffi

# 1 tvöfaldan Expressó

#3 bolla af sterku tei

#2 ltr af Kóla drykk.

Rannsóknir sýna að koffín ( og þar með kaffi ) hefur fjöldann af gagnlegum verkunum. Kaffi er meðal annars gott fyrir :

?       Heilann : Kaffi bætir skap og skerpir minnið

?       Astma : Kaffi opnar öndunarvegi niður til lungnanna og auðveldar þannig astmasjúklingum að anda.

?       Gallsteina : 1 Kaffi bolli á dag minnkar hættuna á gallsteinamyndun um 10%

?       Verki : Ein rannsókn hefur sýnt að konur sem hafa drukkið 1 kaffibola þola sársauka betur.

?       Krabbamein í þörmum : Kaffi minnkar hættuna á krabba í þörmum. Kaffi inniheldur sérstök andoxunarefni sem styrkja verndandi efnahvata í þörmum.

Þá hafið þið það ...

ggs

21.04.2005 02:23

Gleðilegt Sumar

Gleðilegt sumar.

Loksins er sumarið komið með allri sinni dýrð , það er ## stiga hiti, sól og samba blíða. Ef ég væri ekki að vinna , þá lægi ég úti í sólbaði með bjór í hönd. En ég læt mig bara dreyma um það ,aahh...

Annars er lítið sem ég hef að segja . Er búinn að vera vaktmaður á Hvanneyrarbrautinni hjá mömmu og pabba frá því á sunnudaginn síðasta við að passa Mjallhvíti "systir". Gamla settið skrapp á Örkina í heilsumeðferð með eldri borgurum bæjarins.

Á meðan þau gömlu eru á örkinni , þá er ég búinn að mála eldhúsið , ganginn og forstofuna. Líma eldhússtólana og þrífa allt hátt og lágt. Þetta er bara eins og nýtt hús. Meira að segja búinn að skipta um perur í útiljósinu. Á meðan ég bjó Hvbr. 23b , þá var ég ekki þekktur fyrir mikinn dugnað. Steinunn systir sagði að ég væri gæludýrið á heimilinu, kæmi bara heim til að éta , sofa og skíta.

Steinunn, taktu eftir,  batnandi mönnum er best að lifa.

Núna í morgun þegar að ég vaknaði , henti ég mér upp í sófa og kveikti á tíví-inu. Setti á Rúv og var þá að byrja myndband með Michael Jacksson, Smooth Criminal. Djöfull var hann cool á sínum tíma , í hvítum jakkafötum með hatt . Ég ætla að fjárfesta í svona dressi , alla vega hatti. Mig dauðlangar í svona hatt.

En þaðsem MJ var/er góður dansari . Ég ætla á netið á eftir og ná í myndbönd með honum og fara svo að æfa mig. Svo þegar að ég er orðinn 25 þá kem ég á hAllann með hatt og tek sporinn fyrir gesti.

Það er eitt sem hefur blundað í mér lengi og það er að fá mér gullfiska. Það er bara verst hvað fiskabúr eru dýr. Tími ekki að kaupa mér nýtt á uppsprengdu gyðingaverði . Þannig að ef einhver á fiskabúr sem hann vill losna við eða selja ódýrt (verðhugmynd 5.000 kr) þá er bara að hafa samband við mig .

En jæja.. ég er farinn að gera eitthvað .. það er ekki endalaust hægt að slappa af í vinnunni.

ggs kveður
með moonwalk-i í Versló