14.04.2005 11:31
Sitt lítið af hverju
Eitt sinn þegar að ég var í skóla á sauðárkrók, annað hvort árið 2000 eða 20001 þá ákvað ég að skreppa í Skagfirðingabúð til að kaupa mér eitthvað að éta. Ég næ mér í körfu og rölti að kexrekkanum og næ mér í Jaffa Cakes og Homeblest og set það í körfuna. Því næst lít ég upp og sé Kollu Eggerts (sem er frænka mömmu) Ég kalla á hana , en hún svarar mér ekki , þannig að ég hleyp á eftir henni , tek utan um hana og kyssi á kinnina.
Ég skil ekkert í því hvað Kolla varð hissa á því að ég skyldi stökkva á hana og smella einum á hana , þannig að ég ákvað að kynna mig og segja henni hver ég væri , ef að hún skyldi ekki þekkja mig.
Örfáum sekúndum seinna uppgvötaði ég að ég hafði farið mannavilt , þetta var ekkert Kolla Eggerts , heldur einhver sveitabrussa sem leit allveg út eins og hún . Það sem ég skammaðist mín , ég man bara að ég baðst afsökunar og hljóp í burtu og keypti ekkert nema þetta kex.
Svo í dag , tæpum 5 árum seinna , stend ég við kassann að afgreiða í Versló , þegar að Kolla frænka mömmu kemur inn ásamt einhverjum manni og byrjar að versla. Ég heilsa þeim hjónum og klára svo afgreiðsluna og geng svo til hennar og smelli á hana kossi .
Ég var varla búinn að loka munninum þegar að ég áttaði mig á því að ég hefði farið mannavilt - aftur og aftur var þetta sama konan að ég held.
Jesús minn , ef að ég hefði ekki verið einn í búðinni , þá hefði ég farið heim . Það sem þetta var vandræðalegt að þurfa að afgreiða þau hjón svo. Ég var eins Hunt´s tómatur í framan.
Það eina sem ég sagði þegar að þau komu á kassann var ,
- Góðan daginn
- Fleira
- Poka
- Takk fyrir
Ég ætla að vona að ég sjái þessa konu aldrei aftur , hún er farin að gera mér lífið leitt. Eða ég henni . Kannski er það frekar svoleiðis.
En annars er lítið sem ég hef frá að segja. Nema að ég er búinn að vera með kvef í nokkra daga, sem er ekki frásögu færandi fyrir utan það , að í gærkveldi át ég 1 rauðan risa opal og 1 bláan ópal , vegna þess að það stóð á pökkunum í denn að "við kvef og pest , er ópal best" en ég er búinn að finna það út , að þetta er bara rugl . Það eina sem skeður er það að maginn á manni fer á flipp. Er búinn að vera með "golu" í allan dag.
Annað merkilegt sem skeði í dag er það að ég er búinn að eignast nýjan vin. Hann er 14 ára strákur sem kallar mig besta vin sinn. Hef aldrei séð hann , aldrei talað við hann , veit ekki hvar hann á heima - ég veit bara ekki neitt um þennan náunga. Ekki neitt. Hann er með bloggsíðu og gefur upp 2 vini sína. Einhverja stelpu og svo mig ! Slóðin á síðuna hjá honum er http://www.blog.central.is/lindilittli.
Alltaf gaman að eignast nýja "heilbrigða" vini. Eins og það sé ekki nóg að þekkja Árna Óla og Gunnu Finna jr.
Þessa dagana er ég með smá plot í bígerð sem ég get þó ekki opinberað fyrr en eftir helgi . En ef að það tekst , þá tel ég mig vera mikinn snilling
Loksins hefur umræðusvæðið á www.siglo.is verið opnað aftur eftir smá " hlé " . Vonandi munu Siglfirðingar og aðrir nota þetta svæði. En það verður hins vegar að gæta fyllsta öryggis í því hvað er sagt þarna. Því ef að þú gagnrýnir eitthvað , þá verður því líklegast lokað aftur. Þannig að ég ætla ekki að koma nálægt því. Verð að halda nafni mínu hreinu innan bæjarkerfisins svo að ég verði gerður að heiðursborgara þegar að ég verð gamall.
En jæja.. ég er farinn heim að sofa. Búið að vera langur dagur, fyrst í Versló frá 09:00 - 19:30 , þá Lions stjórnarfundur frá 19:30 - 20:00, næst undirbúningur fyrir Gettu Betur frá 20:00 - 21:00 en úrslitin eru á morgun kl. 22:00 á Kaffi Torg . og nú rétt í þessu var ég að klára að lesa upp BINGÓ tölur á hAllanum.
Þannig að ég farinn heim í bælið .. Einn og yfirgefinn
ggs
28.03.2005 08:03
Páskar 2005
Skírdagur
Fyrsti í páskum var tekinn rólega. Ég hóf daginn með því að rísa upp úr hermannabeddanum í síðasta sinn. Síðan var haldið til vinnu og var brjálað að gera í búðinni. Ég tók mér smá pásu klukkan 14:00 og skrapp á myndlistar sýninguna hjá Borgþóri Morthens. Þetta er ein magnaðasta sýning sem ég hef skoðað. Þetta eru ekki hefðbundin málverk, þá meina ég myndir af fjöllum og gömlum bóndabæjum, heldur eru þetta rosa töff myndir sem ég kann ekki fræðiorð yfir til að lýsa betur. Sýningin er haldin í ráðhúsinu og skora ég á sem flesta að fara að kíkka á hana. Reyndar er það besta við sýninguna nú þegar lokið , en það var rauðvínið sem boðið var upp á við opnunina . Eins og sannur íslendingur þá gat ég ekki setið á mér og fékk ég mér 2 glös og þó að ég skammist mín fyrir að segja það , þá fann ég aðeins á mér eftir þau. Því næst rölti ég til baka í Versló og hélt áfram að vinna , mun glaðari og hressari en venjulega.
Eftir vinnu þaut ég heim og skipti um föt og skrapp á Fílapenslana, ásamt mömmu og pabba en ég var driver fyrir þau. Þetta er besta skemmtun sem ég hef farið á . Ég hló svo mikið að ég var með strengi í andlitinu þangað til í gær. Á meðan ég var á skemmtuninni , þá voru Ragnheiður frænka og Tommi Píp að mála fyrir mig svefnherbergið , en það er meira en flestir vinir mínir hafa lagt sig fram við að aðstoða mig við að standsetja nýju íbúðina. Reyndar hafa Árni , GFS og Óla lagt hönd á plóg og mega þau hafa þökk fyrir það. Þegar að ég var búinn að skutla gamla settinu , fór ég heim að hjálpa til við að mála. Þá voru Ragga og Tommi búin að öllu , bara svona smá sjæningar eftir sem ég fer í eftir helgi.
Þar sem að ég er nú ekki sá liprasti í höndunum , fékk ég Tomma til að hjálpa mér við að setja nýja rúmið mitt saman . Þegar að því verki var lokið , kvöddu Tommi og Ragga og ákvað ég þá að byrja á því að mála eldhúsið , svona bara til að gera eitthvað fyrir svefninn. Fyrir venjulega málara þá hefði þetta tekið svona 15 mín, en mér tókst að gera þetta á 3 tímum , þá meina ég bara aðra umferðina. Þá var ég orðinn svo þreyttur að ég rétt komst í sturtu og svo upp í rúm og var ég sofnaður á svona 13 sek. Reyndar spilar inn í þreytuna smá bjór drykkja en hún gerði svefninn í nýja rúminu bara enn betri .
Föstudagurinn Langi
Föstudagurinn langi , er langleiðinlegasti dagur ársins. Á þessum degi er ekkert hægt að gera nema að láta sér leiðast og bíða eftir fréttunum , til að sjá hálfvitana á Filipseyjum láta krossfesta sig að hætti Jessa Krist. Mér finnst að sjónvarpið ætti að sýna sérstakan fréttaþátt um þennan atburð. Þeir rétt sýna 30 sek af þessu og svo bara búið og þarf maður þá að bíða í 1 ár eftir því að sjá þetta aftur.
En annars vaknaði ég í hádeginu eftir símtal frá Ólu , en hún bað mig um að taka sig .. ég meina taka smá rúnt með sig áður en hún færi að vinna. Þegar að ég var búinn að stökkva í föt og lagður af stað hitti ég Árna , en þá var hann nýkominn í bæinn og sagðist ég vera kominn heim eftir smástund og ætluðum við þá að mála seinni umferðina á eldhúsið hjá mér. Þegar að heim var komið og við Árni komnir í stellingar til þess að mála fylltist húsið af gestum. Fyrst komu Dúddi og Nonni, svo Ása , mamma Árna og systir hans hún Binna. Þar á eftir komu Sindri og Rut og sátu þau hjá okkur í smástund. Þegar að þau fóru frá mér, ákváðu við Árni að taka smá rúnt og fórum við aftur á sýninguna hjá Borgþóri. Þar sýndi ég í verki hversu gleyminn ég er, ég tvíspurði Borgþór á 5 mín , hvursu lengi væri opið hjá honum. Strák greyjið heldur eflaust að ég sé eitthvað klikkaður en svona er lífið.
Klukkan 18:00 vorum við komnir heim á Háveginn og var þá ákveðið að hefjast handa við að mála eldhúsið. Það tók enga stund, voru aðeins í c.a. 2 tíma að því , reyndar tókum við nokkrar bjórpásur á milli en þetta var eins og fagmenn hefðu málað þetta. Að verki loknu fögnuðu við því með nokkrum bjórum áður en við gengum frá draslinu.
Þegar að Leifi og Kittý fluttu, skildu þau nokkrar fötur af allskonar málningu eftir sem ég mátti eiga. Fékk ég þá þessa líka frábæru hugmynd um að blanda allri afgangs málningu saman og mála gestaherbergið. Liturinn var frekar spes, grár með hvítum , rauðum og bláum tónum en hann kom samt frekar vel út á veggjunum.
Eftir alla iðnaðarmannavinnuna var ákveðið að skella sér á ball . Ég, Árni og Svava sátum heima og sötruðum nokkra bjóra áður en við kíkkuðum í heimsókn til Sindra og Rutar. Þar var margt um manninn en stoppað stutt. Um leið og við komum var ákveðið að kíkka á ballið á Torginu. Rölti þá allur hópurinn í bæinn til að mála hann rauðan .
Hljómsveit Hússins , Von, sá um spilamenskuna og var hún helvíti góð . En vegna ölvunar þá get ég farið nánar út í kvöldið , nema að það var drukkið, dansað og djammað fram eftir nóttu.
Um 4 leytið ásótti mig aukin ölvun og sá ég mér þá ekki annað fært en að fara heim. Ég rölti af stað en mér til happs , þá kom Gunni Gunn og skutlaði hann mér heim.
Ég hefði eflaust orðið úti ef hann hefði ekki bjargað mér. Þá var ekkert annað hægt að gera nema að fara sofa og reyna að vakna hress.
Laugardagur
Laugardagurinn byrjaði ekki eins og ég hafði hugsað mér. Ég vaknaði með þessa þvílíku flensu. Hún lýsti sér í hausverk, magaverk, og birta og hávaði fór illa í mig. Ég henti mér í sturtu og sjænaði mig og fór svo að vinna. Það var helvíti mikið að gera og leið tíminn mjög hratt sem betur fer. Þegar að ég var búinn að vinna var haldið heim til að fá sér bjór fyrir kvöldið. Árni og Halldór Hárfagri komu fyrst og svo bættust Matti og Elva í hópinn og voru drukknir nokkrir bjórar áður en haldið var á hAllann á ball með Stúlla og Sævari.
Árni hænuhaus , ætlaði "aðeins" að kíkka í heimsókn til Svövu og hitta okkur svo á ballinu. En viti menn , vegna ölvunar, þá gaf handbremsan honum ekki útivistarleyfi þaning að hann varð af góðu balli.
Þegar að við hin komum á hAllann var kjaftfullt hús . Stúlli og ego tröllið Sævar héldu uppi rosa stemningu og voru allir í svakastuði .
Þegar að ballið var búið og ljósin kveikt var fólk ekkert á því að fara heim. Heldur hópaðist fólk á barinn og ætlaði maður aldrei að komast að til að kaupa nesti fyrir heimferðina. Á meðan ég beið eftir því að fólkið færi að týnast út svo að ég kæmist á barinn , hitti ég Hönnu Björns og Dóru Sig. og tókum við spjall um lífið og tilveruna. Var aðalega talað um gamlar konur sem reyna við litla stráka og svo sagðir nokkrir rasistabrandarar sem ekki eru prenthæfir. Á borðinu sem við sátum við , var fullt af bjórglösum , ósnertum . Ég gat ekki hugsað mér að láta hella þessu öllu niður , þannig að ég drakk bara úr þessum glösum. Mér til lukku , ef svo má segja , þá voru engir nauðgarar á barnum þetta kvöld, þannig að ég þurfti ekkert að óttast smjörsýru eða eitthvað þaðan af verra.
Um 4 leytið gafst ég upp og hélt heim á Háveginn . Einn og yfirgefinn eins og venjulega.
Ég fékk mér Tortillas með öllu meðlæti og skreið svo upp rúm , með strengi og hlaupasting eftir það að ganga heim .
Páskadagur
Páskadagur var tekinn rólega. Hann byrjaði þannig að mamma hringdi í mig um 10 leytið og sagði að páskalambið væri tilbúið eftir 2 tíma. Ég þakkaði henni kærlega fyrir að vekja mig svona snemma og hélt áfram að sofa. Aftur hringdi síminn um 11 leytið og aftur var það mamma að láta mig vita að páskalambið yrði tilbúið eftir klukkutíma. Ég þakkaði henni fyrir að vekja mig og sofnaði aftur . Þegar að klukkan var 11:45 hringdi hún í þriðja sinn og sagði að það væri korter í lambið . Ég drullaði mér á fætur og stökk í föt og fór í matinn til gömlu hjónanna. Maturinn byrjaði reyndar ekki fyrr en um 12:30 en hann var allveg dásamlegur hjá pabba, át gott sem yfir mig en það vantaði samt eitthvað við matarborðið sem tók mig smá tíma að fatta.
Það vantaði nefnilega Steinunni systir. Hún var í Reykjavík að læra fyrir stúdentsprófin í MR sem eru eftir mánuð. Hún gat ekki komið heim , vegna þess að hún sagðist ekki geta einbeitt sér heima á Sigló.
Ég held að hún hafi fengið metnaðinn sem ég átti að fá og ég fékk útlitið sem hún átti að fá. Þannig að hún er metnaðarfull og ófríð en ég myndarlegur og metnaðarlaus !
Eftir matinn fór ég í heimsókn í Leyning til þess að vekja Árna en hann drapst þar um nóttina . Ég og Svava frænka fengum okkur kaffi og fínerí þar til að Árni drattaðist á fætur. Sátum við þá í smátíma áður en við Árni ákváðum að skreppa á sjó til að útrýma #ritskoðað# . Fengum við Tomma Píp í lið með okkur og var þá haldið á miðin . Ég , eins æstur og ég er , var gott sem búinn að selja og gefa aflan fyrirfram. En þegar að út var komið þá bilaði #Ritskoðað# og gátum við þá ekki drepið neitt. Var þá ekki annað hægt að gera nema að sigla aftur í land og fara heim að borða og slappa af.
Ég tæmdi Krimmagerði og fór heim að bera drasl og ganga frá. Hringdi þá Valdís í mig og bauð mér að eiga hillur og náttborð sem ég þáði auðvitað með þökkum og er ég núna búinn að útbúa gestaherbergi með öllu tilheyrandi .
Um kvöldið hittumst ég , Svava og Árni heima hjá mér og vorum við á báðum áttum með það hvort við ættum að slútta páskunum með nokkrum bjórum eða bara sitja heima og spjalla og drekka kaffi . Var ákveðið að spjalla og fá sér kaffi en um kl. 01:00 fengum við / ég þá flugu í höfuðið að kíkka á Kaffi Torg í 1 öl fyrir svefnin . Þegar á Torgið var komið var bara fullt hús. Reyndar var bara opið í litla salnum og var hann vel fullur , sem og fólkið sem inni var.
Ég stóð við mitt og fékk mér einn öl og fór heim um 01:30 en Árni kann sér ekki hóf og sat hann að drykkju til lokunar.
Á leiðinni heim , pikkaði Arnar mig upp og fékk ég far með honum síðasta spölin, enda orðnir nágrannar .
Það var ansi ljúft að vakna í dag í nýja rúminu ótimbraður og hress. Stefni að því að eiga fleiri svona daga á næstunni ! en aldrei að segja aldrei. Hver veit hvað kvöldið ber í skauti sér.
ggs
p.s. svona í tilefni af páskunum , þá ákvað ég að bæta við góðum Jesú brandara :
Mikill fjöldi af fólki hafði safnast saman þegar Jesú var nelgdur á krossinn. Á meðan Jesú horfði yfir fjöldan sá hann vin sinn, st. Peter aftarlega í hópnum.
Jesú kallaði á vin sinn "Peter, Peter".
Peter reyndi að troðast fram fyrir fólkið til að komast að vini sínum..
En kallaði Jesú, "Peter,Peter".
"Ég er að koma Jesú, ég er að koma" kallaði Peter á meðan að hann reyndi að komast að Jesú. Á endanum komst hann að krossinum hjá Jesus's og sagði ?Hvað er Jesú?".
& Jesus sagði, "Þetta er frábært útsýni, ég sé húsið þitt héðan!"
22.03.2005 10:11
Óheppni
Eftir að ég var búinn að læsa mig úti á Laugardagskvöldið ákvað ég kíkka á Kaffi Torg. Mér til mikilla undrunar var staðurinn fullur af fólki. Þetta var mest allt skíðafólk og þar sem ég varð að leggja skíðin á hilluna ungur að aldri, hafði ég ekkert við þetta fólk að segja. Það eina sem ég hefði getað sagt þeim var að Alberto Tomba var góður skíðamaður og fjórðungurinn Kristinn Björnsson sá lélegasti í Evrópu. Þannig að í staðinn tilti ég mér hjá vinafólki mínu sem eiga sumarhús hérna í bænum. Þar sem ég frekar gleyminn þá man ég bara nafnið hans, en ekki hennar. Þannig að til að móðga engan nafngreini ég þau ekki enda stoppaði ég bara stutt á Kaffi Torgi, aðeins 1 bjór og ákvað þess í stað að kíkka á Allann í leit að frekari stuði.
Þegar að ég kom á hAllann var frekar fámennt. Ætli það hafi ekki verið svona 10 manns. Ég rölti að barnum og keypti mér 1 bjór en þar hitti ég 2 hollenska sjúkraþjálfara , þá Mano og Erik . Ég sat lengi að spjalli við þá eða þar til að ég kom auga á Maríu , gamlan nágranna frá því að ég bjó í Húsinu á Sléttunni. Hún var jafn sæt og hress og þegar að ég sá hana síðast. Ég spjallaði við hana í smá tíma um lífið og tilveruna eða þar til að Bjössi kveikti á diskóinu. Eftir það var ekki hægt að tala saman í salnum. Tónlistin var svo hátt stillt hjá honum að ég var hættur að heyra eigin hugsanir . Ég held að Bjössi heyri frekar illa, því að hann var ekkert að gera sér grein fyrir þessu , þótt að ég og margir fleiri hafi farið upp og beðið hann um lækka í þessu helvítis negra gauli sem kallast á slæmri íslensku Rapp og Hipp Hopp.
Þegar að ég var allveg að gefast upp og var að gera mig líklegan til að fara heim, komu Hanna og Halldór og ákvað ég þá að sitja aðeins lengur og spjalla við þau. Reyndar hefði ég átt að fara heim þarna, átti að fara vinna snemma í gær en þarna var ég kominn í stuð og fékk mér þá 2faldan Southern Comfort í Sprite með miklum klaka og 1 bjór í eftirrétt. Því næst fór ég upp á svið og rétti Bjössa hjálparhönd við lagavalið til þess að enginn myndi láta lífið úr leiðindum - að mínu mati.
Þegar að klukkan varð 03:00 kom Lóa og sagði okkur að slútta þessu. Þar sem ég bý upp í fjalli og ég ekki allveg í stuði til að labba á Everest ákvað ég að ke..
#Ritskoðað#
Þegar að heim var komið , reif ég mig úr fötunum eins og strippari og henti mér á hermannabeddan og áður en ég lenti var ég sofnaður.
Á meðan ég var að #Ritskoðað# heim , var ég að blóta sjálfum mér fyrir það að fá mér í glas , vegna ótta við þynnku daginn eftir. En mér til mikillar undrunar þá vaknaði ég hress og það hress að hélt að ég hefði verið á Skátafundi kvöldið áður frekar en á hAllanum.
En nóg um það .. Eftir vinnu fór ég í heimsókn til gömlu hjónanna . Ég var varla kominn inn fyrir þröskuldinn þegar að mamma dróg mig inn í stofu til að sýna mér allt páskaskrautið. Það leið nánast yfir mig , það var allt gult. Mér fannt ég vera kominn til Hong Kong. Málið er að móðurættin mín er frekar spes , ef svo má segja. Allar konurnar í móðurættinni skreyta nefnilega hús sín hátt og lágt með páska ungum og gulu drasli . Ég man að þegar ég var gutti , að maður skammaðist sín þegar að vinir manns komu í heimsókn um páskana og sáu allt þetta rusl. Helst hleypti maður engum inn í húsið á páskatímabilinu svo var skömmin mikil.
Frá þeim fór ég til Dúdda að horfa að 24 og Nip / Tuck. Þessir þættir eru þeir bestu sem sýndir eru í Íslensku sjónvarpi í dag. Verst að það skuli ekki vera til fleiri sjónvarpsþættir í þessum gæðaflokki. Þetta var síðasti þátturinn af Nip / Tuck í bili. Nú er bara að bíða og vona að sýningar á næstu þáttaröð hefjist sem fyrst.
Dagurinn í dag var líka einstaklega sérstakur eins og mínir flestu dagar eru . Þegar að ég mætti í morgun , kom sú staða upp að ég þurfti að skreppa inn á Akureyri á fund og að sækja vörur. Var allt sett í botn og kláraði ég dagsverk á 2 tímum og svo var þotið af stað. Ég pikkaði Dúdda frænda upp og tók hann merð mér inn eftir. Gekk ferðin vel að flestu leyti nema að þegar að ég var að keyra út á Akureyrarflugvöll með kassa fyrir Alla Hinna , þá brotnaði aftasti parturinn af púströrinu á BMW-inum og kom þetta þá líka ekki smá hljóð úr druslunni. Þetta hljóð minnti á 12 sílendra tryllitrukk .Dúddi hjartveiki fékk nánast slag en sem betur fer slapp þetta allt fyrir horn .
Þegar að ég kom heim í kvöld , eða um sjöleytið, tók nú ekki betra við . Ég var rétt búinn að afferma bílinn þegar að Ægir Bergs hringdi og bað mig að koma niður í Björgunarsveitarhús . Það var eitthvað pakk sem ákvað að fara yfir hálendið en festu sig og villtust þar uppi og var þá leitað til Sveitarinnar hérna á Sigló til að veita aðstoð vit leitina. Ég stökk upp í bíl og keyrði heim , skildi bílinn eftir í gangi og stökk inn til að ná í Rambó gallann. Þegar að ég kom út aftur , henti ég draslinu inn í bíl og ætlaði að bruna af stað . En NEI, viti menn .. þá sauð á helvítis druslunni og varð ég þá að hlaupa af stað í bæinn. Ég hringdi í Ólu og bað hana um að skutla mér sem hún gerði og þegar að ég kom niður í hús , þá tilkynnti Haraldur mér það að það væri búið að blása leitina af.
Var þá ekkert annað að gera nema að fara heim með Rambó gallann og reyna að koma druslunni í gang aftur. Þannig að hér með auglýsi ég BMW "95 árgerð til sölu á slikk .
- - -
Það er annað sem ég að spá , mig vantar nafn á Háveginn. Þegar að ég bjó á Hvbr. þá hét húsið , Húsið á Sléttunni, og Suðurgatan hét Krimmagerði. Þannig að ef að einhver hefur góða tillögur , endilega setjið það í "comment" og látið nafn fylgja. Sá sem kemur með bestu tillöguna fær veglega úttekt í Versló að launum.
ggs
19.03.2005 11:27
Óheppni
Núna í kvöld , þegar að ég var búinn að borða Jarðarberja grautinn minn og horfa á Spaugstofuna ákvað ég að skella mér í sturtu. Ég tók minn tíma í það og þegar því verki var lokið tók þurkurinn við. Að honum loknum ákvað ég að klæða mig aðeins upp og kíkka á stemmninguna í bænum . Ég skellti mér í gallabuxur, bol og svo svarta anorakkinn minn sem ég prúttaði niður í 1.500 kr úr 4.500 kr í einhverri "tískubúð" á króknum . Ég setti allt draslið í vasann á jakkanum og svo leit ég í spegil en fann mig ekki svona þannig að ég ákvað að fara út anorakknum yfir í gallajakkann.
Þá næst slökkti ég ljósið og steig út. Mér til mikillar mæðu , uppgvötaði ég að ég hafði gleymt lyklunum í helvítis jakkanum. Ég reyndi að setja hendina innum bréfalúguna til að opna en ég rétt kom puttunum inn.
Nú voru góð ráð dýr. Ég er of lítill og hvítur til að geta hoppað upp á svalir , þannig að mitt eina ráð var að banka hjá Sigga granna og spyrja hann hvort að hann ætti stiga. Auðvitað átti hann stiga í bílskúrnum og fórum við félagar út og sóttum hann . Við lögðum hann við svalirnar og ég klifraði upp.
En. Helvítis svalirnar voru auðvitað læstar sem og allt annað í/á húsinu.
Þá kviknaði á gamla bófageninu í mér. Við félagar , ég og Siggi , náðum okkur í verkfæri og fórum við bakvið hús og ég spennti upp einn gluggan þar.
Versta vandamálið var samt eftir. Málið er að gluggarnir eru svo mjóir að þeir eru varla nema svona 20 cm á breidd. Ég átti 2 möguleika á að komast inn. Sá fyrri var að fá einhvern krakka til að skríða inn , en þar sem klukkan var orðinn 22:00 þá vildi ég ekki hringja í einhverja foreldra til að ræsa börn þeirra. Ég hefði hljómað eins og Michael Jacksson í símanum . "Má Nonni hjálpa mér ? Ég er læstur úti og kemst ekki inn um gluggann." Þannig að möguleiki 1 var grafinn lifandi.
Seinni möguleikinn var að hleypa öllu lofti úr sér. Ég andaði frá mér nokkrum vindstigum og dróg magann inn. Ég byrjaði á því að setja vinstri fótinn inn um glugganog svo dróg ég magann og kassann inn . Í 3 sekúndur hélt ég að ég væri fastur. En Siggi granni bjargaði mér með því að ýta í hliðina á mér og þrýsta mér inn. Þá var eftir leikurinn auðveldur og hægri fóturinn komst inn.
Ég veit ef að ég hefði verið með bringuhár , þá hefði ég verið fastur í glugganum það sem eftir er ævi minnar.
ggs
19.03.2005 09:56
Hvar er draumurinn
Í gærkveldi þegar að ég kom heim eftir Lions, edrú og hress, ákvað ég að fá mér 1 bjór (sem ég ætlaði að gefa fólkinu sem myndi hjálpa mér við flutninginn) og lét renna í bað. Þetta er fyrsta sinn í 13 mánuði sem ég hef farið í bað. Auðvitað hef ég farið í sturtu í millitíðinni. Málið er það , að ég bjó í 1 mánuð á Vetrarbrautinni með vini mínum Árna Einari, þar sem var baðkar. En eftir að ég flutti upp í Krimmagerði þá komst ég aldrei bað. Þar var bara sturta. Þannig að þegar að vatnið var orðið
vel heitt , skellti ég mér í karið og sötraði bjór eins og svampur. Það liggur við að ég fái gæsahúð þegar ég skrifa þetta , nývaknaður og úldinn.
Þegar að upp úr karinu var komið, fór ég fram í eldhús við nýja eldhúsborðið sem Magga og Höddi gáfu mér og skrifaði fundargerð líðandi fundar í Lions. Á meðan ég þjösnaðist á lyklaborðinu við að skrifa fundargerðina, hélt ég áfram að sötra flutningabjór. Þegar að augnlokin voru hætt að haldast opinn vegna þreytu, drykkju og vellíðan eftir baðið ákvað ég að það væri best að fara að sofa. En það var þá sem að kvöldið/nóttin varð sérstakt. Mig dreymdi nefnilega sjúklegan draum í nótt. Mig dreymdi að ég hafi verið að kaupa mér nýjan bíl og að það væri engin Idol Stjörnuleit til , þess í stað var þetta svona Óperu- Stjörnuleit og dómnefndin var Kristján Jóhannson, Diddú og Óskar Pétursson. - Hversu brenglað sem það er ?
Draumurinn var einhvern veginn svona ... (venjulega er ég frekar minnislítill en þarna mundi ég nánast öll smáatriði)
Úrslitin í Óperu-Stjörnuleit eru að bresta á. Lykillinn að nýja bílnum er kominn í vasann og lífið getur ekki batnað. Jú þegar ég kem heim bíður mín gullfalleg stúlka sem liggur upp í rúminu mínu og er að horfa á úrslitin. Hún liggur þarna með bjór í hönd og býður mig velkominn inn á mitt eigið heimili. Ég þakka kærlega fyrir mig. Ég rölti að ísskápnum og næ mér í 1 kaldann, opna hann og fæ mér stóran sopa. Ég skelf aðeins en manna mig í að rölta inn í herbergi. Þegar í hurðina er komið , ríf ég mig úr peysunni og hendi mér í rúmið. Ég leggst á milli fóta henni og hún strýkur á mér lubbann (í draumnum var ég enn þá með hár - er hálf sköllóttur í dag. Það er hægt að lesa um það neðar) Það fór unaðs tilfinning um mig. Ég fann hvernig líkams hitinn hækkaði upp úr öllu valdi. Hún tók utan um mig og ég um hana og saman horfðum við á þessa einstaklinga sem eftir voru í úrslitunum syngja sig inn í hjarta þjóðarinnar. Þegar að auglýsingarnar komu fórum við fram og fengum okkur að reykja og horfðumst í augu og flissuðum eins og ástfangnir unglingar. Þegar að úrslitin voru kunngerð féllumst við í faðma sem endaði í kossi. Þessi koss var bara byrjunin að frábæru kvöldi.. Hægt og rólega fara fötin fækkandi og á endanum vorum við kominn á Adam og Evu klæðin
Það sem eftir kom er ekki hægt að birta. Það geta lítil börn geta komist inn á þessa síðu og ég vil ekki að fá barnaverndarstofnun upp á móti mér eða eitthvað þaðan í verra. En svo ég haldi mig áfram við drauminn ...
Þegar að rúmið var orðið blautt úr líkamsvessum og við kominn með brunasár á hnéin létum við gott heita - í bili.
Við fórum fram að reykja og héldumst í hendur og kysstust á milli smóka. Þetta var æðislegt. Við fórum aftur upp í rúm og lögðumst í faðmlög og lágum þannig í þó nokkurn tíma. Þegar að líkamshitinn var kominn aftur á eðlilegt ról , klæddum við okkur og ákváðum við að kíkka aðeins út á lífið.
Við leiddumst í bæinn í kuldanum, það var -7 °c frost . Þegar að við komum á pöbbinn , keyptum við okkur að drekka. (Þarna rumskaði ég og leit á klukkuna og þá var hún 04:35 - ég er nefnilega með klukku úr SR- Byggingarvörum sem varpar klukkunni á vegginn, þannig að ég þarf ekkert að snúa mér til að leyta af henni, en ég sofnaði aftur og mig hélt áfram að dreyma)
Þegar að pleisinu var lokað röltum við út ásamt fleira fólki og ákváðum að leita að partý . Þar sem ekkert partý fannst strax, ákvað ég að reyna að tæla hana heim aftur. Ég stoppaði bíl og var bílstjórinn til í að keyra okkur heim. Þegar að heim var komið settumst við niður og fengum okkur sitt hvorn bjórinn. Því næst ákvað hún að fara í sturtu til að skola af sér "skemmtistaða lyktina" , ég ákvað að elta hana í sturtuna og var það dásamlegt (engar frekari lýsingar - sbr. svigann fyrir ofan).
Þegar úr sturtunni var komið , þurrkuðum við hvort öðru og fengum okkur 1 bjór saman fyrir "svefninn". Við lögðumst upp í rúm. Hún lagðist í handarkrikann á mér og ég bauð henni góða nótt og gerði mig líklegan til að kyssa hana góða nótt. Hún tók á móti og varð þessi koss ansi langur. Eins og vanalega á svona stundu þá er koss alltaf upphaf að einhverju meira , sem endist okkur langt fram eftir nóttu.
Þegar að ...
ding ding ding..
Helvítis vekjaraklukkan vakti mig og ég þurfti að fara að vinna. Þetta var bara eins og alsæla þessi draumur. Það lá við að ég færi að gráta þegar ég vaknaði í morgun, loksins farinn að dreyma eitthvað af viti þegar að klukkan hringdi. Venjulega er ég að kaupa Bónus eða kveikja í kaupfélaginu í draumum mínum og þeir eru alltaf búnir þegar ég vakna þannig að tilgangnum er náð í draumnum. Hefði ég fengið að sofa í svona 3 tíma í viðbót þá hefði ég líklegast tekið einn sprett í viðbót.
ggs
ps. Ef að þetta er ekki merki um einmanaleika þá veit ég hvað. Ef að það verður rólegt hjá mér í dag í vinnunni þá ætla ég að setja saman auglýsingu sem ég ætla að setja á Einkamál.is. Verst er þó að ég er formaður Verslunardeildar Vöku og stjórnarmaður í Kaupmannasamtökunum og erum við alltaf að impra á því að fólk eigi að versla í heimabyggð en þar sem framboðið á almennnilegu kvonfangi hérna í bænum er mun minna en eftirspurnin, verð ég að leita langt yfir skammt. :)
14.03.2005 07:05
H26 - Flutningur
Eins og venjulega þá er lítið að frétta hjá mér.. ég tók formlega við Hávegi 26 að kvöldi föstudagsins 11.3.2005. Ég var varla búinn að setja lyklana í vasann þegar að það var hringt og ég spurður hvort að það væri ekki örugglega innflutnings partý um kvöldið. Ég tilkynnti gáfnaljósunum það , að til að komast í innflutningspartýið þá yrði fólk að hjálpa mér að flytja um helgina til að eiga möguleika á boðskorti í samkvæmið sem ég mun halda þegar ég verð búinn að koma mér almennilega fyrir.
Hingað til hef ég haldið mig VINA MIKINN. Þess vegna bjóst ég við því að það væri biðröð fyrir utan Krimmagerði á laugardagsmorgunin , af VINUM mínum sem ætluðu að HJÁLPA mér við FLUTNINGIN. En viti menn , það mætti aðeins 2 - Já aðeins 2.
Enda er ég búinn að henda út svona 80 símanr. úr minninu á símanum af gömlu "vinunum" - þannig að hér með auglýsi ég eftir vinum í símaskrána.
En aftur að flutningunum, það sem ég varð sár , búinn að taka mér heilt helgarfrí og ætlaði að flytja allt á laugardaginn og bjóða svo fólki heim um kvöldið og gefa því bjór í þakkarskyni fyrir hjálpina. Þeir sem lögðu hönd á plóg voru Óla, hún kom fyrst að hjálpa en þurfti að fara heim snemma til að vera hjá guttanum og svo kom GFS og tókum við það nauðsynlegasta til að ég gæti sofið um nóttina. Á sunnudaginn hjálpaði Bjössi bróðir mér við restina. Núna á ég bara fötin og pottana eftir.
Hefði ég vitað af því að ég fengi svona "mikla" hjálp, þá hefði ég pantað Olgu úr pöntunarlistanum sem ég fékk um daginn á meilið mitt. Þetta var hálfgerður Quelle listi, nema í staðinn fyrir nærföt og lampa , þá gat ég pantað mér rússneskar konur á hlægilega góðu verði. Olga þessi var margfaldur Rússlands meistari í kúluvarpi og kringlukasti. Ég veit að hún hefði farið létt með að bera dótið mitt á milli húsa. Reyndar hefði ég ekki viljað búa með henni , ekki beint fyrir augað , þannig að ég hefði sent hana strax að flutningum loknum heim til sín og tekið Ivönu í staðinn. Hún var þrusu gella. En nóg um það.
Staðan í dag er þá þannig að ég er fluttur , gott sem hjálparlaust, búinn að sofa 2 nætur og er búinn að sofa mjög vel. Er að verða búinn að ganga frá öllu, ætla að mála í kvöld og síðan verða næstu vikur teknar í afslöppun.
ggs
08.03.2005 04:29
Að fá hugmynd
Hugmyndir .
Hugmyndir geta verið slæmar.
Mjög slæmar.
En aðrar geta verið góðar.
Í gær fékk ég góða hugmynd.
Hugmyndin sem ég fékk var sú að kaupa mér íbúð. Sem ég gerði svo í dag. Ég keypti Háveg 26, af Leifa frænda og Kittý. Eins og venjulega þá varð ég svo æstur að ég fór strax heim að pakka niður og á klukkutíma þá pakkaði ég niður 1/5 af öllu lauslegu dóti sem ég á. Þannig að annað kvöld , um miðnætti , þá verð ég tilbúinn. Kominn með allt í kassa og þá er bara að bíða þangað til að Leifi er búinn að sínu.
p.s. 1 . Leifi , ég er ekkert að pressa á þig J
ggs
06.03.2005 07:00
Það er gaman saman
Þetta er búið að vera viðburðarík vika hjá mér. Það er búið að vera brjálað að gera í afgreiðslu á kost í loðnuskip, minnir að ég sé búinn að afgreiða 9 skip samanlagt.
Ég fór á miðvikudaginn í fyrsta sinn á æfingu með Old Boys síðan í september. Ég spilaði með hárband vegna þess að ég var kominn með það mikið hár, leit út eins og Bítlarnir þegar að þeir voru með lubba. Mér gekk agalega á æfingunni. Klúðraði líklegast svona 25 dauðafærum en náði þó að skora 1 mark, mér til mikillar ánægju. Verst er þó að þrekið er ekki til staðar hjá mér eins og þegar að ég var 12 ára , en eftir hverja spila törn hljóp ég inn á bað og þambaði vatn svo að það liði ekki yfir mig. Frétti reyndar daginn eftir að norðurbærinn hafi verið vatnslaus frá 21:10 - 22:10, líklegast vegna vatnsdrykkkju minnar. Svo tók ekki betra við , suðubærinn varð vatnslaus líka þegar ég kom heim vegna þess að ég hélt áfram að þamba úr krananum.
Þegar að ég var búinn að sturta mig og þurrka ákvað ég að "snyrta" aðeins á mér hárið . Ég náði í bláu föndurskærinn mín frá því að ég var í 4 bekk og klippti toppinn. Þegar að ég var búinn að snyrta mig leit ég út eins Lloyd Christmas í Dumb & Dumber. Ég tók niður alla spegla í íbúðinni til að þurfa ekki að horfa upp á þetta og fór svo að sofa.
Á fimmtudaginn þegar ég vaknaði , setti ég á mig húfu og fór að vinna. Ég ætlaði að láta Möggu Dóru laga mig en náði ekki á henni , þannig að ég fékk Steinu Matt til redda þessu. Áður en ég fór þangað þá manaði Guðni bróðið mig til að snoða mig og þar sem ég er svo vitlaus þá tók ég því og því er ég eins og fangi frá Alcatraz í dag.
Á föstudaginn þegar ég vaknaði þá var ég kominn með þessa þvílíku strengi eftir æfinguna. Þannig að þegar ég reyndi að labba , þá leit ég út eins og Forrest Gump , svona hálf haltraði um göturnar. Fólk hélt að þetta væri e-h spítalamatur , hárlaus og haltur og þess vegna forðaði fólk sér þegar að það sá mig. Jæja.. nóg um það ..
Á föstudags kvöldinu var komið 2 keppninni í Gettu Betur.is. Fyrir þá sem ekki vita þá er ég dómari í keppninni og Ægir Bergs er spyrill. Við stóðum okkur fanta vel , gerðum ekki nema 1 mistök. Reyndar voru þessi mistök svoldið stór. Í 2 vísbendinga spr. þegar að það munaði aðeins 3 þremur stigum á liðunum , las Ægir upp 1 vísbendingu og gat hvorugt liðið svarað - en þá reddaði Ægir þessu bara , hann sagði þeim bara svarið.
Svo til að toppa þetta alveg þá vorum við ekki með aukaspurningu. Þá voru góð ráð dýr.
Ég hnoðaði saman spr. um James Bond myndina Never Say Never Again en sem betur fer vissi svarið enginn , þannig að þetta reddaðist allveg.
Jæja .. eftir keppnina þá rölti ég upp á efri hæðina á KT en þar sátu turtildúfurnar Svava frænka og Árni Óla. Sátum við og spjölluðum um "gamla tímann " þ.e.a.s. þegar að við Árni vorum pollar og vorum við að fræða Svövu um það hvernig villimenn höguðu sér í denn .
Síðan kemur kafli sem ég vill ekki fara nánar útí.. skulum bara segja að 1 mánuður getur gert allt vitlaust í viðkvæmum málum.
Næsti kafla get ég varla útskýrt.. þá var ég kominn niður og var að spjalla við Bergþór Morthens og frúna hans, hjúkrunarfræðingin Elínu , þegar að Rúna hans Óla Jóns kemur til okkar og svo einhverja hluta vegna þá stöndum við uppá sviði og erum byrjuð að syngja lagið um Nínu og Geira. Annað sem ég get ekki útskýrt er það að eftir lagið þá hélt ég bara áfram að raula á sviðinu - EINN og yfirgefinn.
Svo loksins þegar klukkan var orðinn 03:00 og loka átti húsinu , ákvað ég að halda smá teiti heima í Krimmagerði . Það voru nú ekki margir sem mættu , bara Árni , Birkir Jóns Þingmaður, Bergþór og Elín - að ógleymdum Dúdda frænda sem kom niður þegar að hann vaknaði við lætin í okkur.
Þegar að inn var komið bauð ég fólkinu sæti inn í stofu og léttar veitingar. Ætli við höfum ekki setið í svona 10 mínútur , þegar að ég tók eftir því að það vantaði Árna . Ég rölti fram og leit inn á WC-ið og þar sat Árni og hélt utan um magann á sér og kvartaði yfir verkjum. Ég lét hann bara eiga sig og fór inn í stofu aftur en þegar að það voru liðnar aðrar 10 mín þá ákvað ég að líta eftir honum og þá lá hann á gólfinu á WC-inu og þá leist mér nú ekki á blikuna. Hélt bara að hann væri að deyja á gólfinu. Ég fékk Elínu Hjúkku til að líta á hann en Árni var bara með kjaft og vildi enga hjálp. Þannig að í staðinn fyrir að láta hann deyja á gólfinu hjá mér , hringdi ég og vakti Árni Einar og fékk hann til að ná í Árna Óla og keyra hann heim. Eftir að við vorum laus við sjúklingin héldum við bara áfram að spjalla fram eftir nóttu - þó aðallega um pólitík.
Ástæðan fyrir veikindum Árna er frekar sniðug. Hann keypti sér Rússneskan Þynnkudrykk , bruggaðan af KGB , sem lætur lifrina vinna hraðar út áfenginu og þess vegna á þynnkan að vera minni daginn eftir þegar að maður vaknar. Um kvöldið áður en við fórum út , var Árni að fræða mig um þennan drykk og ég spurði hann hvort að þetta væri ekki bara eitthvað eitur - þetta væri líklegasti stórhættulegt.
Árni hélt nú ekki , sagði að þetta væri allra meina bót. En svo varð nú ekki.
Ég veit að þótt hann hefði verið skotinn í magann , þá hefði kvalist minna. - en þar sem hann lifði þetta af , þá er í lagi að hlægja af þessu.
Laugardagurinn var bara tekinn rólegur. Vaknaði reyndar kl. 9 til að afgreiða loðnuskip en ég lagði mig aftur kl 10:30 - var frekar ryðgaður eftir nóttina.
Kl. 14:30 hringdi Óla í mig og ruddist svo inn á mig með látum og dróg mig með sér út á rúntinn og að borða á KT.

Restin af deginum fór svo bara í afslöppun , ég og Árni fórum heim og lágum við eins og skötur það sem eftir var af deginum upp í sófa glápandi á teiknimyndir. Árni staðnaði nefnilega í þroska þegar að hann var 11 ára, þannig að ég varð að horfa Thundercats og the Mighty Mouse með honum - Reyndar skemmti ég mér konunglega á því að horfa á þessar myndir.
Kvöldið endaði svo með því að Barbie bættist í hópinn og horfðum við Switchback áður en ég hélt af stað í draumalandið
The End
ggs
26.02.2005 04:48
Ljósaferð dauðans
Á fimmtudaginn var ég "skreppa" í vinnunni , var að rölta á Aðalgötunni þegar að eldri maður gengur að mér og spyr mig hvort ég sé eitthvað veikur, sé með baugu og skjannahvítur. Ég þrætti fyrir það , sagðist aldrei hafa verið jafn hress og nú. Hann var nú ekki allveg að sætta sig við þessi svör mín , sagðist hafa séð mig í Apótekinu og núna svona ræfilslegan - Það hlyti bara eitthvað mikið að vera að mér.
Um
leið og ég losnaði frá þessum gamla samsærissjúklingi , hringdi ég í
Dóra í Fjarðarsól og pantaði tíma , símtalið var einhvern veginn svona :
(Fyrir bjána ÉG er G og Dóri er D)
D: Fjarðarsól, góðan dag
G: Sæll Dóri , Gauti heiti ég
D: Ha ?
G: Sæll Dóri , Gauti heiti ég
D: Já sæll vinur
G: Áttu lausan tíma kl. 20:00
D: Bídduu., látum okkur nú sjááá. , kl. 20:00 segiru ? (innsk. Þetta tók svona 25 sek)
G: Jamm
D: Nei , því miður, en ég á laust kl. 20:05
G: hehe.. já ég tek hann
D: kl 20:05
G: ok , takk kem þá.
Síðast þegar ég fór til Dóra , þá varð ég ekki einu sinni fölur eftir tímann , þannig að ég ákvað að breyta aðeins til. Í staðinn fyrir að vera með andlitið undir andlitsperunum þá sneri ég mér öfugt, var með fæturna þar. Síðan klárast tíminn og ég varð vel rauður.
Daginn eftir þegar ég vaknaði , þá hélt ég að það væri kviknað í andlitinu á mér. Ég skað brann í framann. Ég var eins og Hunt´s Tómatur . Þvílík pína, er búinn að bera á mig nokkrar flöskur af Aloe Vera kæligeli og er allur að koma til .
12.02.2005 03:06
ggs vs. NYPB

Ekki datt mér í hug að smá pistill á netinu gæti gert heilt bæjarfélag geggjað. Sérstaklega lögregluna. Málið er það , fyrir þá sem ekki til þekkja, að á heimasíðu Siglufjarðar kaupstaðar er svona umræðu svæði þar sem fólk getur sent inn greinar og aðrir síðan commentað á eða svarað. Núna fyrir nokkrum dögum fór ég á www.siglo.is og leit á þetta umræðusvæði og þar var einhver "hugaður maður" sem skrifaði undir dulnefni og var að gagnrýna störf lögreglunar hér á Siglufirði. Auðvitað gat ég ekki setið á mér og varð að upplýsa fólk um atvik sem ég lenti í núna í haust og skrifaði auðvitað undir nafni , vegna þess að ég var að segja satt og rétt frá og hafði ekkert að fela. Ég var málefnalegur og ekkert út á það að setja en því miður fór þetta eitthvað fyrir brjóstið á sumum . Ég stend á mínu og eftir að ég birti þennan pistil um daginn hefur Lögreglan nánast setið aftur í hjá mér á meðan ég að keyra eða þegar bíllinn minn sést á ferli.
Greinin sem ég birti var svona :
9.2.2005
Núna í haust , 11.9.2004 var mér boðið í mat inni í fljótum, nánar tiltekið í Haganesvík hjá Bjössa bróðir. Árni Óla fékk far með mér því að hann var einnig að fara í mat í fljótunum, á Fyrir Barði. Klukkan 18:26 þegar við vorum rétt lagðir af stað og nýkomnir úr göngunum var Lögreglan fyrsti bíll fyrir framan okkur. Við dóluðum á 80 - 90 km hraða á eftir henni niður Sauðanes brekkuna. Á móti okkur, hinum megin í brekkunni kemur hvítur bíll og hægir Löggan á sér og við líka og allt í einu setur hún BLÁU ljósin á og hvíti bíllinn hægir á sér og við héldum að hann hafi verið tekin fyrir of hraðann akstur og bílstjóri hvíta bílsins líklegast líka en þegar L**** og Nonni lögga sáu hver þetta var í bílnum þá slökktu þeir bláuljósin og keyrðu burt. Bílstjóri hvíta bílsins stoppaði nánast, hélt að hann hafi verið gripinn en keyrði svo af stað til Siglufjarðar vegna þess að löggan var farinn. Við hugsuðum báðir, ég og Árni hvað væri í gangi en þegar við sáum bílstjóra hvíta bílsins föttuðum við hvað þetta var. Þá var þetta konan hans L**** löggu.
Þetta var algjör skandall fyrir lögregluna á Siglufirði. Hún var búin að vera í þvílíku átaki í sumar , búinn að taka líklegast nálægt 100 ökumenn og hafði ekki gefið neinum séns en svo núna þegar eiginkona L**** kemur á 1?? þá er henni sleppt.
Um 8 leytið fór ég upp á Fyrir Barð og náði í Árna og við dóluðum okkur heim .. Við keyrðum bara á normal hraða, á svona 90- 100 km/klst en hægðum á okkur niður í svona 50-60 km þegar við komum að göngunum og allt í gúddí. En þegar við vorum að renna fram hjá Gamla Bakaríinu sáum við allt í einu BLÁ ljós, já viti menn , þar lágu þeir félagar L**** og Jonni í felum ! bara með stöðuljósins og ég tók ekkert eftir þeim og var gripinn á 56 km/klst. GÖNGUHRAÐA og fékk 10.000 kr sekt.
Það sem pirraði mig mest var það , að þegar ég var í Lögreglu bílnum, þá voru þeir með BLÁU ljósin á allan tímann. Fólk hefur líklegast haldið að þeir væru að handtaka Steingrím Njálsson eða Charlie Manson.
Guðmundur Gauti Sveinsson
- - - -
Um kvöldið þegar ég ákvað að birta þetta , hringdi ég í Árna og spurði hann hvort hann stæði ekki örugglega með mér ef að eitthvað yrði gert úr þessu þar sem þetta er viðkvæmt mál fyrir Lögregluna. Kolbeinn sleppir kellingunni sinni, gómar mig á gönguhraða og tekur síðan Sýslumannsfrúnna fyrir ofhraðan akstur. Sýsli er örugglega ekkert rosalega sáttur við Kolla og Jonna. En svona er þetta bara. Strax daginn eftir , bara um leið og ég mæti í vinnuna klukkan 9 fer fólk að hrósa mér fyrir að þora að koma fram og gagnrýna þessa háu herra undir nafni. Síðan rétt eftir hádegi sama dag, kemur kona inn í Versló og spyr Helgu hvort að Guðmundur Gauti sé við. Ég rölti fram, ekkert nema coolið og þar stendur Þóra. Þóra er konan hans Kolbeins og biður hún mig um að koma með sér út , hún sagðist þurfa að eiga við eitt orð. Ég rölti út og varla búinn að loka hurðinni þá var hún byrjuð að garga. Ég ætla nú ekki að birta það sem okkur fór á milli , þess í stað samdi ég vísu um það og er hún svohljóðandi :
Konan hans Kolbeins gargaði,
gelti og kallaði fauta.
Ég tók á móti og argaði
og sagði henni að kalla mig Gauta
Jæja.. og núna hvert sem ég fer , þá fæ ég allstaðar hrós fyrir þessa grein mína nema frá 1 manni og það er MD enn hann er ekkert að marka . Fífl hvort sem er.
Svo í gær eftir vinnu , klukkan 19:15 fór ég á stjórnarfund hjá Kaupmannafélaginu. Þar sem það var föstudagur ákvað ég að fá mér 1 kaldan , bara til að sötra yfir fundinum en þar sem þessi fundur var aðeins lengri en búist var við þá varð þessi eini að nokkrum. Þegar fundi var slitið um 22:00 voru 2 eftir á Torginu. Ég og Óla + Hulda. Þar sem klukkan var orðin svo margt og ekkert hægt að gera héðan í frá nema að fara heim að sofa ákvað ég bara að fara á fyllerí og sátum við Óla á Kaffi Torgi til að verða 01:00 . Þá röltum við á Bóhem í þeirri von um að hitta e-h fólk . Þegar við komum inn á Bóhem og ég stíg inn í sal og lít yfir svæðið þá er fyrsta "manneskjan" sem ég sé Kolbeinn G Engilbertsson. Ég fer á barinn og panta mér 1 Carlsberg og finn mér svo sæti og breiði úr þokka mínum yfir svæðið. Ég var alltaf á varðbergi . Bjóst við því að hann myndi stökkva á mig og sleikja mig eins og litlir hvolpar gera. Ég leit á hann og sá þá mest creepy augnaráð sem sést hefur. Ég fékk gæsahúð og það mikla að ég sat orðið á rasshárunum. Maður gat allveg lesið úr þessu (innsk. Lesist með skrækri rödd)" jæja.. litli drengur , ég skal naga þig eins og hundar naga bein"
Ég fann allt kvöldið svona tilfinningu eins og þegar að það er skotið á menn í skotheldu vesti með skammbyssum. Þá var hann að skjóta mig með augnaskotum. Ógeðslega vont. Mér er farið að svíða í þetta núna.
En þetta var svona það merkilegasta sem skeði þetta kvöld. Ég mun skrifa meira um þetta mál á næstu dögum , ef það skyldi verða eitthvað vesen.
ggs
06.02.2005 01:35
6. Febrúar 1958
"Það var enginn grátur né öskur, ekkert hljóð. Bara hryllingurinn þegar flugvél brotnar..
Fimm manns í snjónum í fjarska kölluðu "Hlauptu! Hlauptu! Hlauptu!" Ég heyrði barn gráta. Þetta er svona einfalt, ekkert í John Wayne stíl. Ég kallaði "Komið aftur, það er fólk á lífi hérna...!"
Þannig minnist Harry Gregg markvörður mesta sorgardags í sögu Manchester United en hann var einn þeirra sem komst lífs af úr flugslysinu í München fyrir 47 árum. Gregg hefur alltaf verið fremur lítillátur og líst sjálfum sér sem "stórum heimskum markverði," en er af mörgum álitin hetja fyrir afrek sín þennan kalda febrúardag í München.
Það er skoðun David Meek, sem byrjaði að skrifa um Manchester United eftir slysið.
"Harry hefur aldrei verið maður sem hefur hátt um eigin afrek. Það er sérstaklega rétt þegar rætt er um flugslysið í München. Það er ekki hægt að lýsa aðgerðum Harry eftir slysið á annan átt sem hetjuverki."
Gregg og varnarjaxlinn Bill Foulkes stóðu í því að hjálpa þeim sem lifðu slysið af út úr brakinu þrátt fyrir að flugstjórinn James Thain segði þeim að forða sér en hann óttaðist að vélin myndi springa í loft upp.
Paddy Crerand, sem kom til félagsins nokkrum árum síðar, er ekki í neinum vafa um dáðir Gregg.
"Hann var alvöru hetja í München, það er enginn vafi á því. Ég sagði Harry að ég hefði aldrei lent í svona stöðu. En ef ég hefði verið það þá hefði ég örugglega verið einn af deplunum í fjarska á hlaupum til að bjarga mér."
Lið United millilenti í München til að taka eldsneyti á heimleið eftir 3-3 jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópukeppni Meistaraliða gegn Rauðu Stjörnunnu í Belgrad. Flugtakstilraunin sem endaði með skelfingu var sú þriðja í röðinni.
Átta leikmenn Manchester United fórust í slysinu, Roger Byrn, Eddie Colman, Mark Jones, David Pegg, Tommy Taylor, Geoff Bent, Liam Whelan og Duncan Edwards.
How they laughed and loved and played the game together
Played the game and gave it every ounce of life
And the crowds they throng to see such free young spirits
My good god there won't be many coming home
There are those gone down that long long road before us
Yet each morning we try and keep them in our sight
In memories eyes the Busby Babes are all immortal
The Red Devils spured lived it never died
Samið og flutt af Harry Gregg í tilefni þess að 40 ár voru liðin frá flugslysinu 6. febrúar 1998.
They shall not grow old as we that are left grow old
Age shall not weary them, nor the years condemn
At the going down of the sun, and in the morning
We will remember them......we will remember them
06.02.2005 01:21
Man Utd. vs. Bayen Munchen
Ég var að drepa tímann áðan í vinnunni og rakst á þessa ótrúlegu sögu um úrslitaleikinn í evrópukeppninni 1999 á milli Man Utd og Bayern.
Var það koss sem breytti gangi leiksins?
eftir Ray Massey, föstudaginn 28. maí 1999.
Ég eyddi ótrúlegu kvöldi í sæti 08, röð 3, þriðja bás á Nou Camp leikvanginum í Barcelona - svo nálægt grasinu, að ég fann lyktina af því.
Manchester var marki undir, venjulegum leiktíma lokið og viðbótartíminn tifaði þegar boltinn barst inn í áhorfendaþvöguna hjá mér, rétt við vítateig Bayern Munchen.
Boltinn lenti í höndunum á áhanganda Manchester United, sem ég frétti síðar að héti Birka Tibi og hafði komið frá heimalandi sínu, Ungverjalandi, til að horfa á leikinn.
Kallið mig hjátrúarfullan, en aðeins fáum sekúndum eftir að hann kyssti fótboltann, breyttist gengi Manchester United. Dökkur, sólbrúnn og þrekinn, þessi ungi maður, í fráhnepptu grænu vesti, leit út eins og sambland af Hulk og The Jolly Green Giant.
Hann lyfti boltanum í átt til himins eins og heilögum kaleik, sönglaði eitthvað algjörlega óskiljanlegt - fyrir utan orðin "Mencheester Yoonited" - og smellti síðan kossi á boltann, með þykkum vörum sínum.
Þetta var eins og ákall til guðanna. Aðeins vantrúarsvipurinn á hneyksluðu andliti Ryans Giggs náði að rjúfa helgistundina. Hann kom hlaupandi að hliðarlínunni meðan dýrmætar sekúndur liðu og kallaði: "Komdu með boltann", með gremjulegum angló-saxneskum hreimi í þessum áríðandi skilaboðum.
Innkastið var tekið, það var smá hamagangur við vítateiginn og kraftaverk kraftaverkanna, Teddy Sheringham sendi knöttinn í netið. Áhorfendur trylltust af gleði.
Birka Tibi stökk inn á leikvanginn í sæluvímu en var strax gripinn af lögreglunni og færður aftur í sæti sitt. Varla hafði æðið runnið af áhorfendum þegar aftur var búið að skora mark. Ég sver, ég sá þetta allt eins og það væri sýnt hægt.
Leikmenn Bayern Munchen lágu út um allt í örvæntingu sinni. Þvílíkur endir á mildu kvöldi í Barcelona. Aðeins nokkrum mínútum áður hafði allt litið öðruvísi út. Samt heyrði ég aldrei neinn áhanganda Manchester United gefa upp vonina.
Fyrir aftan mig sat ungur drengur ásamt móður sinni - andlit hans málað í United litunum. Hann tók myndir og veifaði þumlinum upp í loftið. Kvöldið tilheyrði tugþúsundum af rauð- og hvítskreyttum áhangendum.
p.s.. Ég er búinn að skoða þetta á myndbandinu og því miður sést þessi ótrúlegi maður ekki, en rétt áður en fyrra markið er skorað fer boltinn útaf og Ryan Giggs sést hlaupa að áhorfendum með útréttar hendur til að heimta boltann. Síðan kemur Gary Neville til að taka innkastið...það sem á eftir kom verður skráð í knattspyrnusöguna.
29.01.2005 10:58
Litlu eyrun
Ég er með lítil eyru. Þau eru á stærð við eldspýtustokk. Nema að í gærdag kom sölumaður til mín ásamt verðandi sölumanni. Ég tók pöntun hjá honum og bauð þeim síðan inn í Reykholt í kaffi. Við sátum í sælunni og vorum að spjalla um lífið og tilveruna. Við töluðum um verslunarbransann og síðan allt í vorum við farnir að tala um sjónvarpsþætti. Við fórum að tala um Extreme Makeover og breytingarnar sem hafa verið gerðar á fólki þar. Það liggur við að það sé nánast skipt um andlit á þessu liði. Ég tók eftir því að nýji sölumaðurinn var alltaf að horfa á mig og þá sérstaklega á þessi "stóru" eyru sem ég með. Ég, þessi rosalegi húmoristi fór þá að tala um hvað þessi "stóru" eyru trufluðu líf mitt. Sagði þeim að ég gæti ekki keypt mér boli né peysur sem væru venjulegu hálsmoli. Yrði að kaupa mér föt með V-laga hálsmoli vegna þess að eyrun festust alltaf í þessu venjulega. Svo sagði ég þeim að ég hafði verið kallaður Björn Bjarnason í skóla. Ég sagðist vera búinn að panta mér tíma hjá lýtalækni til þess að láta minnka þau og að ég hafði þurft að hætta í skóla á króknum vegna þess að ég var kominn með svo mikla verki í eyrun útaf helvítis vindinum sem er þar alltaf. Sagði að þau hefðu bögglast alltaf í vindinum. Nánast færst aftur á hnakka. Síðan fóru þeir bara frá mér. Nema svo núna rétt áðan hringdi síminn hjá mér í Versló og ég svara og þá var þetta gamli sölumaðurinn. Hann var að segja mér frá því að strák greyjið var allveg undrandi á mér á leiðinni heim. Hann hélt að ég væri klikkaður, hélt að ég vissi ekki af því að þau væru svona lítil. Gaurinn hélt að ég væri bara raunveruleika fyrrtur. Það sem ég hló , leið nánast yfir mig .
ggs
28.01.2005 06:58
Egils Kristall
Þegar ég vaknaði í gær ákvað ég að skella mér í sturtu og
tók ég mér ágætis tíma í það. Þegar ég var búinn að sturta mig ,
þurrkaði ég mér og vafði svo handklæði um mig miðjan. Síðan
labbaði ég fram og setti Jamie Cullum á fóninn , Everlasting
Love, og fór síðan aftur inn á bað til að snyrta mig. Á leiðinni
inn á bað rak ég mig í Lions derhúfuna mína og datt hún á
gólfið. Ég tók hana upp og setti hana á mig og leit svo í
spegil. Djöfull brá mér þegar ég leit í spegilinn. Ég var orðinn
svo fölur að ég var eins og Egils Kristall með sítrónubragði.
Sódavatn. Glær skrokkur með gula húfu , allveg eins og
gosflaska. Um leið og Dóri opnaði Fjarðarsól hringdi ég og
pantaði mér tíma í ljósum um kvöldið. Ég skánaði nú aðeins ,
varð svona ljósfölur. En það varði stutt. Þessar perur í
lömpunum eru svo úr sér gegnar að ég hefði allveg eins getað
staðið fyrir framan háuljósin á BMW-inum.
ggs
27.01.2005 02:00
140 ár
Jæja.. Gott fólk, þetta er stórmerkilegur dagur í dag. Það eru 50 ár síðan að pabbi varð pabbi , Guðni bróðir er nefnilega 50 ára í dag og það eru 21 ár síðan að Guðni eignaðist Ragnheiði. Annað sem er merkilegt í sambandi við afmæli er það að Pabbi verður 70. ára á þessu ári, Guðni er 50. ára í dag og Steinunn systir verður 20. á þessu ári. Samanlagt 140 ára afmæli. Þar sem fjárhagur minn er ekki góður þessa dagana hef ég sett af stað söfnun í tilefni að þessum stóratburðum. Söfnunar reikningurinn er númer 1102-26-400409 í Sparisjóði Siglufjarðar.
Einnig mun ég halda uppboð á ýmsum munum úr einkaeign, svo sem teinóttu jakkafötunum sem pabbi gaf mér og vona ég að þau seljist á svipuðu verði og fötin hans Björgólfs. Þetta eru föt með mikla sögu á bakvið sig, held að þetta séu fötin sem pabbi var í þegar að hann pikkaði mömmu upp í fyrsta sinn. Ég mun bjóða margt annað upp en það verður auglýst nánar síðar sem og uppboðið.
Með fyrirfram þökk um góða söfnun.
ggs
