31.03.2009 17:32
Minningarorð

Í dag kveðjum við þig, elsku amma Lóa. Við systkinin eigum ótrúlega góðar minningar sem ylja okkur um hjartarætur á erfiðum tímum. Þú reyndist okkur alltaf vel; þegar mamma veiktist tókst þú Gauta að þér og er Steinunn kom heim með mömmu og pabba einu og hálfu ári síðar varst þú okkar ómetanleg hjálp, við gátum alltaf leitað til þín. Við nutum þeirra forréttinda að búa fyrir ofan þig á Háveginum í nokkur ár og heimili þitt var okkar annað heimili.
Í stóra holinu var brugðið á leik, þar var sett upp búð eða villta vestrið og haldnar tískusýningar og alltaf varstu tilbúin að lána okkur það sem vantaði. Þær voru ófáar næturnar sem við fengum að kúra í ömmurúmi og þá söngstu fyrir okkur og við fórum saman með faðirvorið. Aldrei skammaðir þú okkur, varst alltaf svo blíð og góð og lagðir okkur lífsreglurnar á þinn yfirvegaða hátt.
Einnig minnumst við allra þeirra kræsinga sem þú töfraðir fram, skipti þá ekki máli hvort það voru stríðstertur eða hnallþórur, frómas, ömmuís eða bestu smákökur í heimi, kattartungurnar.
Síðustu ár hafa verið þér erfið en núna ertu komin á betri stað og við vitum að þú ert hvíldinni fegin. Við kveðjum þig með söknuði og sárt er til þess að hugsa að litlu langömmustrákarnir þínir, Sveinn Ingi og Jóhann Gauti, fái ekki að kynnast þér.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku amma, takk fyrir allt
Þín barnabörn,
Guðmundur Gauti og Steinunn María.
( Minningargrein sem ég og SMS skrifuðum um ömmu Lóu og birtist í Morgunblaðinu 29.3.2009 )
Guðmundur Gauti og Steinunn María.
( Minningargrein sem ég og SMS skrifuðum um ömmu Lóu og birtist í Morgunblaðinu 29.3.2009 )
Skrifað af ggs
