31.03.2009 17:32
Minningarorð

Í dag kveðjum við þig, elsku amma Lóa. Við systkinin eigum ótrúlega góðar minningar sem ylja okkur um hjartarætur á erfiðum tímum. Þú reyndist okkur alltaf vel; þegar mamma veiktist tókst þú Gauta að þér og er Steinunn kom heim með mömmu og pabba einu og hálfu ári síðar varst þú okkar ómetanleg hjálp, við gátum alltaf leitað til þín. Við nutum þeirra forréttinda að búa fyrir ofan þig á Háveginum í nokkur ár og heimili þitt var okkar annað heimili.
Í stóra holinu var brugðið á leik, þar var sett upp búð eða villta vestrið og haldnar tískusýningar og alltaf varstu tilbúin að lána okkur það sem vantaði. Þær voru ófáar næturnar sem við fengum að kúra í ömmurúmi og þá söngstu fyrir okkur og við fórum saman með faðirvorið. Aldrei skammaðir þú okkur, varst alltaf svo blíð og góð og lagðir okkur lífsreglurnar á þinn yfirvegaða hátt.
Einnig minnumst við allra þeirra kræsinga sem þú töfraðir fram, skipti þá ekki máli hvort það voru stríðstertur eða hnallþórur, frómas, ömmuís eða bestu smákökur í heimi, kattartungurnar.
Síðustu ár hafa verið þér erfið en núna ertu komin á betri stað og við vitum að þú ert hvíldinni fegin. Við kveðjum þig með söknuði og sárt er til þess að hugsa að litlu langömmustrákarnir þínir, Sveinn Ingi og Jóhann Gauti, fái ekki að kynnast þér.
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guðmundur Gauti og Steinunn María.
( Minningargrein sem ég og SMS skrifuðum um ömmu Lóu og birtist í Morgunblaðinu 29.3.2009 )
21.03.2009 12:25
Minningarorð
Á lífsleiðinni kynnist maður mörgum. Það er mér dýrmætt að hafa kynnst Sindra. Fyrir það er ég ósköp þakklátur. Þegar að ég byrjaði að vinna í Versló hjá Guðna bróður og Helgu þekktumst við lítið sem ekkert. Sindri var sex árum eldri ég, en þó var ég föðurbróðir hans og leiddist mér ekki að skjóta á hann ef að við vorum deila um eitthvað, að hann ætti að hlusta á föðurbróður sinn og svo hlógum við.
Samband okkar varð strax mjög gott . Við urðum góðir vinir og hélt sú vinátta áfram þegar að Sindri hætti að vinna í Versló. Þegar að ég flutti til Reykjavíkur minnkaði sambandið eins og oft vill gerast og þegar ég flutti heim aftur, flutti hann stuttu síðar suður. En þegar að við hittumst var alltaf kátt á hjalla og stutt í gleðina sem einkenndi okkar vináttu.
Að kvöldi sunnudagsins örlagaríka þegar að pabbi hringdi og lét mig vita að Sindri væri dáinn, spruttu upp ótal minningar í huga mér . Til dæmis þegar að við fórum í gæsaveiði í Skagafjörðinn og fórum á vitlaust tún í myrkrinu og kýrnar birtust við hliðina á okkur í birtingu, einkaþorrablótið með sviðasultunni, jafningnum og Meukow-flöskunni og við enduðum kvöldið rauðhærðir eftir að Rut litaði okkur. Þegar hann plataði mig með í stangveiði í Fljótin og lét mig kaupa veiðigræjur í Siglósport fyrir fleiri þúsund og ég fékk aldrei titt, varla þara eða þegar að hann fékk mig til þess að leysa sig af á dansnámskeiðinu til að hann gæti horft á Arsenal í Meistaradeildinni og ég tala nú ekki um allar stundirnar okkar saman í Versló. Þetta voru æðislegir tímar sem ég á aldrei eftir að gleyma, tímar sem ég á eftir að segja fólki frá, tímar sem ég á eftir að geyma í hjarta mér.
Það er öllum hollt að umgangast jafn heila manneskju og Sindri var. Lífið brosti við og gatan virtist greið, þegar áfallið reið yfir. Það er svo sorglegt að hugsa til þess hvað Sindri átti eftir að gera margt og upplifa og hvað hann átti mikið að gefa öðrum.
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Morthens)
Elsku Rut, Jakob Auðun og Halldóra Helga, ég votta ykkur og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Sindri mun ávallt lifa í hjörtum okkar allra sem vorum svo lánsöm að kynnast honum.
26.02.2009 00:00
4 Mánuðir
.
Við töluðum við Hans og Grétu í
Arhus á Skype-inu í gærkveldi . Sveinn Ingi fór hamförum, teljandi á
dönsku upp á tíu og leika listir sínar með Bubba byggir hamarinn sinn ,
berjandi allt sem hægt er að banka í .
Við í Glæsibæ getum
ekki beðið eftir að fá þau heim á klakann til að leyfa frændunum litlu
að hittast . Um jólin hafði Sveinn Ingi mestar áhyggjur af því að
Jóhann Gauti ætti ekki buxur og hætti ekki fyrr en búið var að klæða
hann í föt og sömu áhyggjur vöknuðu í gær þegar að hann sá að Jóhann
Gauti var buxnalaus . Umhyggjusamur stór frændi sem á eftir að passa
litla frænda þegar að þeir eldast.

10.11.2008 15:54
Jóhann Gauti

Lykilorðið á barnalandi.is er það sama og var á barnaneti.is , nafn litlu systir Drífu .
Við skulum vona að þetta verði síðasti flutningurinn okkar .. í bili
Kveðja úr Glæsibæ.
Gauti , Drífa og Jóhann Gauti.
http://www.johanngauti.barnaland.is
30.10.2008 17:23
Styttist í heimferð
Nóttinn var ekki jafn auðveld , sá stutti vildi fá að drekka á tveggja tíma fresti og virðist botnlaus. Drífa fór í heftatöku í morgun og lítur skurðurinn vel . Er farin að fá kláða í sárið og er það merki um að þetta sé að gróa vel .
Ef allt gengur eftir áætlun , þá erum við farin heim á morgun . Ætla að byrja að pakka niður í kvöld og setja eitthvað í bílinn og svo erum við farin heim á Sigló um 10 leytið á morgun.
Djöfull hlakkar mér rosalega til að komast heim . Er kominn með allgjört ógeð á Reykjavík . Erum búin að vera hérna í tæpar 3 vikur .
Meira síðar ..
28.10.2008 12:34
JGG
Höfum reyndar lent í smá brasi með brjóstagjöfina , sá smái virðist vera botnlaus , getur drukkið endalaust , kannski gen úr Dúdda frænda en þetta er allt til bóta
Erum á stofu 13 á Sængurkvennadeildinni fyrir vini og vandamenn sem vilja kíkja í dag. Heimsóknartíminn er frá kl. 17-19:00
Bjallið bara í mig ef það er eitthvað - 868-9333
17.10.2008 14:18
Í fréttum er þetta helst
Á laugardaginn síðasta settum við töskur og annann farangur í Prins Lu og héldum af stað til Sódómu. Gekk ferðin vel , fengum flott veður og góða færð , en það hefði svosem ekki skipt miklu , því að hvirfilbylurinn var fyrir löngu kominn á nagladekk .
Sunnudaginn tókum við snemma . Skelltum okkur út að borða . Bauð frúnni út á bæjarins Bestu og skunduðum svo yfir götuna á Grjónamarkaðinn . Mætti halda að Drífa væri fyrsta konan á Fróni sem gengi með barn. Vorum rétt komin inn þegar að ein sölukonan stökk á okkur og bauð okkur til kaups stuðkant og rúmteppi á 1.000 kr. Illa farið , en í kaupbæti gátum við fengið rifið pífulak !?!? . Þetta hefði verið í lagi ef að unginn ætti eftir að liggja í jötu , en þar sem það er árið 2008 og hann á eftir að liggja í vöggu og rimlarúmi , afþökkuðum við "gott" boð.
Næsta bauð okkur litlar og notaðar samfellur fyrir lítið - aftur afþökkuðum við "gott" boð.
Sú þriðja kallaði á eftir okkur : Halló ! Halló ! Hey þið ! . Við stoppuðum og litum í kringum okkur en sáum engan sem væri að kalla á okkur , fyrr en við litum niður og þar stóð kona á sextugsaldri , um 1,40 á hæð , álíka há og eldhússtóll , en samt ekki dvergur því að útlimirnir voru í eðlilegum hlutföllum við annað og sagðist hún eiga fullt af barnafötum handa okkur , máttum "GRAMSA" eins og við vildum - enn og aftur afþökkuðum við "gott" boð.
Eftir allar þessar ofsóknir ákváðum við að yfirgefa Grjónamarkaðinn og héldum út í dagsbirtuna með bros á vör og nokkrar bækur.
Síðustu daga höfum við verið á fullu að sanka að okkur því dóti sem vantar upp á . Búin að fjárfesta í handklæðum , rúmfötum , pelum , teppum & fl . Erum búin að þræða Baby Sam , Hagkaup, IKEA , Móður Ást og RL búðina . Það eina sem eftir er er dýnan í vögguna . Förum í Baby Sam í dag og kaupum dýnu og þá getur erfinginn af Glæsibæ komið í heiminn .
Síðastliðið þriðjudagskvöld fórum við í skoðunarferð um fæðingardeild Landspítalans ásamt fleiri pörum. Fengum þar góðar upplýsingar og einnig að kíkja í Hreiðrið og skoða okkur þar um . Í gær fórum við í mæðraskoðun í Hamraborginni og lítur allt vel út . Erfinginn er ekki fullskorðaður en að öðru leyti er allt tilbúið til komu . Settur dagur er þó ekki fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku , 21 október .

jæja.. látum þetta duga í bili ..
09.10.2008 15:51
Próf
Fékk þetta sent á mail . Eftir að hafa lesið yfir þetta , fór ég
á plusferdir.is og leitaði að ódýrasta fluginu - aðra leið . En vegna
ástandsins , ætla ég að bíta á jaxlinn og axla ábyrgð á því sem ég er
búinn að gera - það er ekki aftur snúið !
Ert þú að velta því fyrir þér hvort þú sért tilbúin(n) til að eignast barn? Þá ættirðu kannski að taka þetta próf fyrst!
Fituprófið
Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.
Leikfangaprófið
Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið um nætur.
Stórmarkaðsprófið
Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.
Fataprófið
Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.
Matarprófið
Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.
Næturprófið
Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina. Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega út!
Sköpunargáfuprófið
Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka. Búðu til alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum.
Bílprófið
Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar. Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn tilbúinn!
Þolpróf kvenna
Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans ? 9/10 verða eftir.
Þolpróf karla
Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin þín verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta sinn!
Lokaprófið
Komdu þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig þau geta bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun og borðsiðum barnsins. Legðu áherslu á að þau megi aldrei láta barnið sitt hlaupa um eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt aldrei aftur hafa rétt svör við öllu.
Ert þú tilbúin(n) til að eignast barn?
29.09.2008 14:04
SMS 23 ára

Biðjum að heilsa Gaua og Sveini ,
Gauti og Drífa
29.09.2008 12:14
Hreiðurgerðin
Jæja .. Látum okkur nú sjá . Hvar eigum við að byrja . Ég gæti svo sem lýst getnaðinum í smáatriðum en kann ekki við það hérna þessa stundina.
Frá því að Drífa pissaði á prikið , hefur tíminn liðið ótrúlega hratt. Mánuðir hafa liðið sem vikur og vikur sem dagar .
Við ákváðum strax að kaupa barnavagn , vöggu og rimlarúm fyrir ágóðann af fyrirtækinu sem við seldum fyrir metfé.
Þó var ég í upphafi full kærulaus. Hugsaði alltaf með mér að ég hefði nægan tíma til að standa í öllu því sem þyrfti að gera , td. rýma herbergið , mála það, parketleggja , setja upp gardínur , borða og bara nefnið það.
Drífa tók þessu með stakri ró framan af sumri en eftir því sem að bumban stækkaði , minnkaði þolinmæðin í staðinn.
Núna í september var allt sett á fullt í hreiðurgerðinni. Þann 13 máluðum við allt herbergið hvít , 20 skelltum við bláa litnum á neðripartinn og núna 27 parketlagði Bjössi herbergið og þar með er hreiðrið nánast klárt.
Um leið settum við rimlarúmið saman , Bjössi og Drífa settu IKEA kommóðuna saman og ég brasseraði mat á meðan , enda er ég með ofnæmi á háustigi fyrir IKEA drasli !!
Nú er bara eftir að skella Bangsímon borðanum á vegginn , fjárfesta í gardínum , þá er allt saman ready og þá getur unginn komið í heiminn .
Hendi inn myndum á 123.is/ggs + Barnaland síðuna fljótlega25.08.2008 00:04
Að eldast og þroskast
Þegar að ég sat á nýja heimilispostulíninu um daginn , las ég áhugaverða grein í blaðinu meðganga.is . Fjallaði hún um "hreiðurgerðina" og er klausan svona :
Hreiðurgerðin - Þegar kemur að hreiðurgerðinni hjá konunni þá heyrir þú þetta oft: "Elskan, eigum VIÐ ekki að mála herbergið," (Eitt af mörgu sem konan þín á eftir að finna upp á að gera) sem þýðir að þú gerir það og hún horfir á og stjórnar. Taktu þessu eins og maður.
Ég var búinn að kvíða þessu lengi . Enda þoli ég ekki að mála . Að mála er eitt það leiðinlegasta sem ég geri . Eins og að slægja 3 tonn af undirmáli. Náði að humma þetta af mér alla vikuna en á laugardaginn var komið að skuldadögum . "Hreiðrið" skyldi málað . Ég óttaðist mest að vera skipað áfram harðri hendi , fá enga hvíld og lúmska punkta um helgidaga frá frúnni en allt kom fyrir ekki . Ef eitthvað er , þá stóð hún sig mun betur en ég . Gaf ekki tommu eftir og málaði eins Duffield-in . Kláruðum svo part 1 í dag og verður part 2 tekinn í vikunni .
Hættum snemma í laugardaginn , því okkur var boðið í grill til Gunnu Hauks . Yfirkokkur var Rúnar , en hann sá um grillið og Gunna um meðlætið . Eftir matinn sátum við og sötruðum öl og spjölluðum áður en Singstar var blastað í botn . Gunna var ótvíræður sigurvegari kvöldsins en ég tel mig hafa sungið góðan leik og náð silfrinu sannfærandi .
Merkilegt nokk . Í gærkveldi áttaði ég mig á því hvað ég væri að verða gamall . Ég kunni varla staf í nýju lögunum sem við reyndum að syngja . En var með öll gömlu nánast á hreinu . Þetta er frekar óþægileg tilfinning . Stundum verið sagður gömul sál og er það líklega alveg hárrétt .
Ég er auðvitað að verða pabbi í október og á þá líklegast eftir að taka stórt þroskastökk , eða það vona ég. Fæ kannski skeggrót og smá bringuhár og get þá loks farið í ríkið án þess að verða spurður um skilríki .
Þýskur rithöfundur Hermann Hesse (1877-1962) sagði eitt sinn að því meira sem einhver þroskast, því yngri verður hann. Og vissulega er fullt af fólki sem verður kraftmeira og ötulla, víðsýnna og umburðarlyndara eftir því sem það eldist, lifir við meira frelsi og sjálfstraust. Það er mikilvægt að muna að það að eldast og það að verða gamall er ekki endilega það sama.
Þess vegna ætla ég að brosa framan í heiminn í dag . Ég er ekki að verða gamall . Ég er bara að þroskast . Ég á afmæli í dag. Ég er 25 ára í dag.
18.06.2008 22:29
Fugla og Litla hraun

Þessi Kría stillti sér upp fyrir myndatöku eins og Hollywood drottning.


Drífa vill ekki leyfa mér að mynda náttúruna heima - þannig að blómin verða að duga


Óli grillaði ofan í okkur þetta líka svakalega góða lambakjöt á meðan Ásta gerði Bearnise sósu frá grunni sem fær 10 í einkunn !


Djöfull var erfitt að vakna í morgun . Sofnuðum seint og vöknuðum snemma . Ég var ennþá pakk saddur eftir gærkveldið og þegar að ég mætti til vinnu í morgun þurfti ég að skreppa upp á sauðárkrók eftir vörum . Fór á sendibílnum upp eftir og munaði litlu að ég yrði bráðkvaddur .
Nú ? Því að einhver helvítis fífl brutu aðra afturrúðuna í bílnum og er sú nýja ekki ennþá kominn. Kom allur útblásturinn út pústkerfinu inn um gluggann og var ég við það að lognast út af. Því stoppaði ég í Hofsós City , keypti eina rúllu af svörtum ruslapokum og bað um nauðgara tape , en það var ekki til , þannig að ég fékk e-h ennþá betra tape . Skellti pokanum í gluggann og tape-aði vel og málið leyst.
Ferðin var ekki alveg vonlaus því að ég fékk magnaðar viðskiptahugmyndir á leiðinni heim . Ég ætla að fá umboð fyrir nýja tape-ið og markaðssetja það vel fyrir verslunarmannahelgina! Ætla ég að aðallega að stíla á Akureyri - Rusl lýðurinn sækir alltaf þangað .
Hin hugmyndin er að gerast umboðsmaður fyrir skjólveggi. Málið er að selja skjólveggi á Sauðárkrók er buisness sem getur ekki klikkað. Það er aldrei logn á króknum , þannig að þeir eiga eftir að seljast eins og heitar lummur !

Til dæmis kom Jonni SI með rúm 10 tonn í dag


En jæja .. Ég nenni ekki meiru í bili .. Góða nótt .
17.06.2008 13:28
Amma Steinunn
Ég varð aldrei svo heppinn að hitta þá konu , enda lést hún töluvert á undan komu minni í heiminn.
Steinunn systir er skírð í höfuðið á ömmu . Pabbi var búinn að ákveða það sem ungur maður ef að hann myndi eignast dóttur , þá myndi hann nefna hana í höfuðið á henni . Margir hverjir segja að Steinunn systir sé eins og amma . Lítil og smágerð en kjarnakona sem fyrir sínar eigin leiðir og lætur ekkert stöðva sig.
Talaði við pabba í morgun í símann og barst amma í tal og sagðist pabbi standa fyrir framan mynd af þeirri gömlu , eins og hann orðaði þetta , og væri honum hugsað til hennar , orðin 101 árs .
Ófáar stundirnar hef ég setið við eldhúsborðið í Kardimommubæ með pabba og hlustað á hann segja mér sögur frá því að hann var polli . Sögur af ömmu og hvernig hún stýrði heimilinu á meðan að afi var á sjónum .Það er greinilegt að þar hefur farið mikil og góð kona .
03.06.2008 22:36
Ísbjarnarblús
Við fórum í sónar í gær og lítur allt vel út , barnið er heilbrigt að sjá og er bara gleði í Glæsibæ. Komutími hefur verið staðfestur , 21.10.08 kl. 12:34:56.
En við lögðum af stað norður um kvöldmatarleytið í gær . Þegar að klukkan var rétt að verða 22:00 og við ný skriðin ofan af Þverárfjallinu og rétt komin á Sheep River Hook sprakk annað afturdekkið hjá okkur . Lögðum við fyrir framan Lögreglustöðina og hentum varadekkinu undir á meðan annar hver bíll úr Skagafirði rúntaði framhjá og gláptu á okkur eins og kynferðisglæpamenn.
Í morgun þegar að ég var að skutlast með vörur hjá Eimskip hringdi Árni í mig og spurði hvort að ég hefði séð Ísbjörninn sem væri á vappi við Þverárfjall ? Ég hélt að gleðipinninn væri eitthvað að fíflast í mér , eða þá drukkinn í morgunsárið . Bæði jafn líklegt . Nei , sagði ég .. Sagðist ekkert hafa séð neinn hvíta björn á röltinu en þegar að hann fór að lesa af mbl.is þá fór ég nú að trúa honum .
En það sem ég er að spá .. Ef dekkið hefði sprungið á Þverárfjalli , ég búinn að tjakka upp bíllinn og bjössi hvíti hefði mætt á svæðið ? Hvað hefði maður átt að gera ? Hlaupa í burtu eða standa kjur og þykjast vera vegstika ? Stökkva inn í bíl , læsa og breiða upp fyrir haus ?
Eða ef Drífa hefði verið inni í bíl og séð bangsa koma aftan að mér og reynt að láta mig vita , argað út um gluggann " Það er ísbjörn fyrir aftan þig !!! Forðaðu þér " - Ég held að maður hefði tekið því mátulega alvarlega .

Hann hefði getað nagað Prins Lu með þessar - En ekki Bimman ! Þýskt eðalstál
En ímyndunarafl mitt fór á flug í dag þegar að ég fór að spá í þessu . Fékk svona léttan Jurassic Park fíling , munið þið ekki eftir atriðinu í fyrstu myndinni þegar að þau eru stopp og risaeðlan kemur að bílnum og gaurinn lítur í spegilinn og fær sjokk , les síðan "smáaletrið" á speglinum

